Færsluflokkur: Pepsi-deildin

Grátlegt sjálfsmark felldi íslenska liðið/Við því er ekkert að gera,við einfaldlega ekki nógu góðir!!!!

Grátlegt sjálAron Einar Gunnarsson í baráttu við Tomas Rosický í leiknum í kvöld.fsmark felldi íslenska liðið Íþróttir | mbl | 16.11.2014 | 21:36 Aron Einar Gunnarsson í baráttu við Tomas Rosický í leiknum í kvöld.

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu tapaði sínum fyrsta leik í undankeppni Evrópumótsins, en Tékkar höfðu betur í leik liðanna í Plzen í kvöld, 2:1.

Íslenska liðið komst yfir snemma leiks en úrslitin réðust á klaufalegu sjálfsmarki

Fyrri hálfleik­ur var ekki nema níu mín­útna gam­all þegar Ragn­ar Sig­urðsson kom ís­lenska liðinu yfir.

Fyr­irliðinn Aron Ein­ar Gunn­ars­son tók þá langt innkast inn á teig­inn, Petr Cech fór í skóg­ar­ferð úr mark­inu en bolt­inn virt­ist ætla að fara fram­hjá.

Birk­ir Bjarna­son náði hins veg­ar að skalla bolt­ann aft­ur fyr­ir sig og inn í teig­inn þar sem Ragn­ar skallaði í netið.

Drauma­byrj­un. Róður­inn var hins veg­ar þung­ur eft­ir markið og all­an fyrri hálfleik­inn. Markið virt­ist stressa ís­lenska liðið upp sem náði ekki upp neinu spili í sinn leik og Tékk­ar stjórnuðu leikn­um al­gjör­lega.

Þeir fengu nokk­ur ágæt færi en þegar ís­lenska liðið virt­ist ætla að halda út fram að leik­hléi brast stífl­an. Tom­as Rosický tók þá auka­spyrnu af miðjum vell­in­um, send­ing hans beint á fjær­stöng­ina þar sem Daniel Pudil kom bolt­an­um inn á teig­inn þar sem varn­ar­maður­inn Pavel Kadera­bek skallaði í netið.

Það reynd­ist síðasta snert­ing fyrri hálfleiks, 1:1 að hon­um lokn­um.

Síðari hálfleik­ur byrjaði líkt og sá fyrri þar sem heima­menn voru mun betri en kæru­leys­is­leg­ur varn­ar­leik­ur ís­lenska liðsins var stress­andi á að horfa.

Um miðjan hálfleik­inn bar sókn Tékka ávöxt, en fengu góða hjálp við það. Jaroslav Plas­il var kom­inn upp að enda­mörk­um vinstra meg­in og reyndi fyr­ir­gjöf fyr­ir markið sem fór af Jóni Daða Böðvars­syni, þaðan í Hann­es Þór Hall­dórs­son í mark­inu og í netið.

Meira svekkj­andi get­ur það ekki orðið. Nýr hægri væng­ur kom inn hjá ís­lenska liðinu í kjöl­farið og liðið fór fram­ar á völl­inn.

Strák­arn­ir reyndu hvað þeir gátu að jafna leik­inn en Tékk­ar gerðu fá mis­tök og héldu út.

Loka­töl­ur 2:1. Tékk­ar tóku því efsta sæti riðils­ins af Íslend­ing­um og hafa fullt hús stiga eða tólf tals­ins eft­ir fjóra leiki.

Ísland er í öðru sæt­inu með níu stig, þrem­ur stig­um á und­an Hollandi sem er í því þriðja.

Fylgst var með gangi mála í beinni lýs­ingu hér á mbl.is sem sjá má hér að neðan, en nán­ar

verður fjallað um leik­inn í Morg­un­blaðinu á morg­un og hér á vefn­um í allt kvöld.//////////////////////////Þetta er bara svona við vorum verra liðið að mínu mati og töpuðum og og það eiginlega að óþarfa að mér fannst við bökkum um of mikið engir menn stóran kafa leiksins í eigin vítateig og um það bil þessa vegna var ekki gott að skora,en þetta er búið og hverjum þetta er að kenna hljóta menn að sjá/Halli gamli


mbl.is Grátlegt sjálfsmark felldi íslenska liðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sögulegur sigur á bronsliði HM/Ísland sigurvegari á jafnvel 3 sterkasta liði heimsins!!!

 

Öðru marki Gylfa Sigurðssonar á 42. mínútu var fagnað.

Sögulegur sigur á bronsliði HM Íþróttir | mbl | 13.10.2014 | 20:41 Öðru marki Gylfa Sigurðssonar á 42. mínútu var fagnað.

Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu vann einn sinn stærsta, ef ekki þann alstærsta, sigur frá upphafi þegar liðið skellti Hollendingum, bronsliði síðasta HM, á Laugardalsvelli í kvöld í undankeppni EM í knattspyrnu, 2:0.enn ekki fengið á sig mark, en skorað átta.

Liðið er jafnt Tékklandi á toppi A-riðils, með 9 stig, en næsta lið er Hol­land með 3 stig.

Ísland mæt­ir næst Tékklandi í Prag þann 16. nóv­em­ber í síðasta leik árs­ins. Ísland fékk al­gjöra drauma­byrj­un en Gylfi Þór Sig­urðsson kom liðinu yfir strax á 10. mín­útu með marki úr víta­spyrnu.

Birk­ir Bjarna­son nældi í víta­spyrn­una af miklu harðfylgi en hann komst í veg fyr­ir send­ingu úti við horn­fána, og náði svo bolt­an­um rétt á und­an Stef­an de Vrij sem braut á Birki inn­an teigs.

Hið ógn­ar­sterka lið Hol­lands var mikið með bolt­ann í leikn­um en gekk ekki vel að finna gluf­ur á vörn Íslands.

Það var helst um miðjan fyrri hálfleik þegar Robin van Persie komst í mjög gott færi en Hann­es Þór Hall­dórs­son varði frá hon­um, og skömmu síðar þegar Ar­jen Robben átti skalla fram­hjá úr dauðafæri.

Und­ir lok fyrri hálfleiks kom seinna markið þegar Gylfi skoraði með föstu skoti upp í þak­netið úr teign­um, í kjöl­farið á horn­spyrnu Em­ils Hall­freðsson­ar.

Það var lengi vel óvíst hvort Gylfi gæti spilað leik­inn vegna meiðsla en hann var magnaður eins og í öðrum leikj­um keppn­inn­ar til þessa.

Ari Freyr Skúla­son varð að fara af leik­velli og gat ekki spilað seinni hálfleik, en Birk­ir Már Sæv­ars­son kom inná í hans stað og stóð vel fyr­ir sínu.

Hol­lend­ing­ar reyndu að fjölga í sókn sinni en gekk ekk­ert að skapa sér nein dauðafæri. Ísland varðist vel og átti hættu­leg­ar skynd­isókn­ir sem þó skiluðu ekki marki að þessu sinni.

Staða Íslands í undan­keppn­inni er orðin af­skap­lega væn­leg en aðeins 3 um­ferðum af 10 er lokið.

Næsti leik­ur er eins og fyrr seg­ir gegn Tékk­um eft­ir rúm­an mánuð.

Þetta var í fyrsta sinn í 11 til­raun­um sem Íslandi tekst að vinna Hol­land.

Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is og viðtöl koma inn síðar í kvöld.

Fjallað verður ít­ar­lega um leik­inn í íþrótta­blaði Morg­un­blaðsins í fyrra­málið./////////////////Nú hafa margir tapað veðmálum, er ég hræddur um,en gleði okkar Íslendinga er mikil og meiri en nokkru sinni fyrr,þetta landslið er það besta sem maður hefur séð,hjá okkur og Hollendingar fengu að sjá það vel,Áfram Ísland/Halli gamli


mbl.is Sögulegur sigur á bronsliði HM
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gylfi: Megum ekki misstíga okkur/Það er víst að við ættlum að vinna þetta sameginlega!!!

Gylfi: 
Gylfi Þór SigurðssonGylfi Megum ekki misstíga okkur Íþróttir | Morgunblaðið | 9.10.2014 | 10:20 Gylfi Þór Sigurðsson „Þetta er leikur sem við megum ekki misstíga okkur í ef við ætlum okkur einhverja hluti í þessari undankeppni,“ segir Gylfi Þór Sigurðsson, um leik Íslendinga gegn Lettum á Skonto Stadium-vellinum í Riga í Lettlandi annað kvöld.n þjóðirn­ar eig­ast þá við í undan­keppni EM.

Gylfi hef­ur farið mik­inn með liðið Sw­an­sea City í byrj­un leiktíðar í ensku úr­vals­deild­inni þar sem hef­ur lagt upp hvert markið á fæt­ur öðru og þá skoraði hann eins og frægt er sig­ur­markið í frækn­um sigri Sw­an­sea gegn Manchester United á Old Trafford.

Verður erfitt að brjóta þá á bak aft­ur „Við höf­um verið dug­leg­ir sjálf­ir leik­menn­irn­ir að minna okk­ur á hvernig síðasta keppni byrjaði,“ sagði Gylfi við Morg­un­blaðið en eft­ir góðan sig­ur á Norðmönn­um í fyrsta leik í undan­keppni HM tapaði ís­lenska liðið fyr­ir Kýp­ur­bú­um á úti­velli.

Gylfi Þór Sigurðsson. Gylfi Þór Sig­urðsson. mbl.is/Ó​mar Óskars­son „Þessi leik­ur á móti Lett­um er kannski svipaður þeim og við spiluðum á móti Kýp­ur

. Lett­arn­ir eru með lið sem sit­ur til baka og það verður erfitt að brjóta þá á bak aft­ur.

Þeir koma til með að verj­ast á mörg­um mönn­um og það kem­ur til með að mæða svo­lítið mikið á okk­ur sókn­ar­mönn­un­um að reyna að kom­ast í gegn og skora,“ sagði Gylfi, sem átti frá­bær­an leik eins og reynd­ar flest­ir í ís­lenska liðinu þegar það lagði Tyrki, 3:0, á Laug­ar­dals­vell­in­um í síðasta mánuði. Gylfi skoraði annað markið í þeim leik og hef­ur þar með skorað 6 mörk í 25 lands­leikj­um.

Mik­il­vægt að kroppa í stig á úti­velli „Þetta er leik­ur sem við meg­um ekki mis­stíga okk­ur í ef við ætl­um okk­ur ein­hverja hluti í þess­ari undan­keppni. Það sem kem­ur til með að ráða miklu hvort við komust áfram eða ekki eru úti­leik­irn­ir.

Við verðum að vera dug­leg­ir að kroppa í stig þar og það er því mjög mik­il­vægt að ná þrem­ur stig­um út úr þess­um leik því það eru nokk­ur mjög sterk lið í riðlin­um sem munu ekki gera mikið af mis­tök­um. Sig­ur­inn á móti Tyrkj­un­um gaf liðinu mjög gott sjálfs­traust.

Staðan á leik­manna­hópn­um í dag er góð. Það eru flest­ir heil­ir heilsu og við höf­um flest­ir verið að spila nokkuð mikið með okk­ar fé­lagsliðum.

Það er mjög já­kvætt. Það gekk allt upp hjá okk­ur í leikn­um á móti Tyrkj­un­um en ég held að þessi leik­ur verði allt öðru­vísi. Það er erfitt að segja til um það hvort við mun­um stjórna leikn­um.

Við reikn­um alla vega með því að Lett­arn­ir dragi lið sitt vel til baka og verj­ist á mörg­um mönn­um. Þeir hafa gert það í síðustu leikj­um og hafa fengið mjög fá mörk á sig,“ sagði Gylfi.

Hef­ur gengið vel hjá mér Spurður hvort föstu leik­atriðin geti ekki verið afar dýr­mæt í leikj­um eins og þess­um seg­ir Gylfi; „Það er kom­inn tími á að Kári eða ein­hverj­ir af stóru strák­un­um skalli bolt­ann inn og ég mun gera mitt besta til að ,,teikna“ bolt­ann á þá.

Von­andi tekst mér að hitta áhaus­inn á miðvörðunum,“ sagði Gylfi en ansi stór leik­ur er svo framund­an á mánu­dag­inn þegar Íslend­ing­ar taka á móti Hol­lend­ing­um.

,,Við erum ekk­ert að hugsa um leik­inn við Hol­lend­inga. Það er mik­il­væg­ari leik­ur fyr­ir okk­ur að vinna Lett­ana.

Ef við ger­um það etum við farið í leik­inn við Hol­lend­ing­ana án allr­ar pressu og notið þess að spila.

Nú er bara aðal­atriðið að ná þrem­ur stig­um á móti Lett­un­um og það ætl­um við okk­ur svo sann­ar­lega að gera,“ sagði Gylfi sem hlýt­ur að vera með bullandi sjálfs­traust eft­ir frá­bært gengi með Sw­an­sea.

„Það er búið að ganga vel hjá mér og liðinu.

Þrátt fyr­ir jafn­tefli í síðustu tveim­ur leikj­um þá erum við í ágæt­is­stöðu í deild­inni.“////////////////Ekki spurning að með, þessu hugarfari komumst við langt,og við skulum öll standa með okkar mönnum í blíðu og stríðu!!!Knattspyrnan er á mikilli uppleið hjá okkur og er það vel,en þetta kemur þó hægt fari og við eigum þarna got lið og jafnvel í tvö,þegar  gramt er  skoðað,og þeir telja sig ekki þurfa að nota Eyð sem virðist vara í góður formi,en við bíðum spennt,ég er i smá sárum með að mitt lið Fram féll í fyrtu deild,en það kemur bara vonandi upp að ári liðnu,svo er maður Arsenal aðdáandi og þeim gengur ekki nógu vel,þar vantar okkur að kaupa allavega 3 leikmenn um áramamót Wenger er góður þjálfari með nýjan völl sem er að verða skuldlaus og þá á hann fyrir þessum  mönnum,en við bíðum og sjáum hvað fram vindur,en Íslenska landsliðið áfram að vinna það gott/Halli gamli


mbl.is Gylfi: Megum ekki misstíga okkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ögmundur: Ég get alveg tekið vítin//Framarar í því að halda sér uppi!!!flott; og Arsenal mitt lið í Enska gerði jafntefli við M.C.Flott !!!

Ögmundur: Ég get alveg tekið vítin Íþróttir | mbl | 23.9.2012 | 19:20 „Það er hlutverk manns í liðinu að verja.

Maður stóð fyrir sínu í dag,“ sagði Ögmundur Kristinsson, markvörður Fram, sem varði eins og berserkur undir lok leiksins gegn ÍA í Pepsi-deildinni í dag þegar Framarar unnu 1:0 sigur.

Framarar voru talsvert betri aðilinn lengst af í leiknum en undir lokin fengu Skagamenn hvert færið á fætur öðru án þess þó að finna leiðina framhjá Ögmundi.

Almarr Ormarsson fékk meðal annars vítaspyrnu sem hann klúðraði svo sjálfur, rétt eins og í síðustu umferð þegar Sam Tillen klúðraði víti sem hann fiskaði. Ögmundur sagðist í léttum tón tilbúinn að taka að sér vítaskyttuhlutverkið.

Með sigrinum komst Fram þremur stigum frá fallsæti auk þess sem liðið er með betri markatölu en Selfoss sem nemur sex mörkum. Ögmundur vill þó ekkert hugsa um annað en að vinna síðasta leik í stað þess að treysta á önnur úrslit.//////Þetta er bara gott úr því sem komið er að halda sér uppi i deildinni,og koma svo í framhaldi með betri árangur,áfram Fram!!!en mitt lið i enska var að sætta sig við jafntefli á móti sterku liði M.C. og M.U.N.vann sinn leik  gegn Liferpool á dómaraskandal,en við bara tökum þessu öllu með ró!!!!/Halli gamli


mbl.is Ögmundur: Ég get alveg tekið vítin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framarar léku Fylkismenn grátt/Loksins en kannski of seint,:en við berjumst!!!

FramarFylkismennirnir Ásgeir Börkur Ásgeirsson og Andri Þór...ar léku Fylkismenn grátt Íþróttir | mbl | 3.9.2012 | 21:07 Framarar lyftu sér upp úr fallsæti og það örugglega en þeir lögu andlausa Fylkismenn, 4:0, á Laugardalsvellinum í kvöld.

Kristján Ingi Halldórsson skoraði tvö fyrstu mörk Framara og þeir Almarr Ormarsson og Samuel Tillen skoruðu sitt markið hvor.

Fylkismenn léku manni færri frá 49. mínútu þegar Ásgeir Börkur Ásgeirsson var sendur af velli eftir viðskipti við Almarr Ormarsson. Framarar eru 10. sætinu me 20 stig, Selfyssingar hafa 18 stig en Grindvíkingar sitja sem fyrr á botnum með aðeins 10 stig. Fylkismenn eru með 23 stig í 9. sæti deildarinnar.///////Auðvitað föggum við FRAMARAR!! þessu þó seint sé,en við munum berjast við að halda okkur í deildinni,ekki spurning ,það eru 3 leikir eftir við Keflavík og ÍA og síðast ÍBV og við munum  berjast ekki spurning :með okkar mönnum!!!/ Halli gamli


mbl.is Framarar léku Fylkismenn grátt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jafntefli hjá KR og Fram//gott stig gegn sterku liði,kannski bjargar falli???

Jafntefli hjá KR og Fram Íþróttir | mbl | 27.8.2012 | 19:54 Íslands- og bikarmeistarar KR og Fram skildu jöfn, 1:1, í Pepsi-deild karla í knattspyrnu á KR-vellinum í kvöld. KR er því fjórum stigum á eftir FH og hefur auk þess leikið einum leik meira. FH er með 35 stig eftir 16 leiki en KR er í öðru sæti með 31 stig eftir 17 leiki. Fram fékk dýrmætt stig í fallbaráttunni og er þar með 17 stig, á undan Selfyssingum sem eru með 15 og Grindvíkingum sem eru neðstir með 10 stig. Kristinn Ingi Halldórsson skoraði fyrir Fram á 35. mínútu en Kjartan Henry Finnbogason jafnaði úr vítaspyrnu Almar Ormarsson og Guðmundur Reynir Gunnarsson í baráttu á...
fyrir KR á 85. mínútu.///////////Ég er bara sáttur að mitt lið Fram sem hefur valdið okkur stuðningsmönnum vonbryðum í sumar,hafi bara gert það gott að næla þarna í stig sem gæti bjargað falli/Halli gamli

mbl.is Jafntefli hjá KR og Fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fram vann Blika í fimm marka leik/Loksins unnu mínir menn,komin tími til!!!

Fram vann Blika í fimm marka leik Íþróttir | mbl | 20.8.2012 | 21:03 Fram vann mikilvægan sigur á BreiðabFrá leik Fram og Breiðabliks í kvöld.liki, 3:2, í 16. umferð Pepsi-deildarinnar í fótbolta í kvöld en Almarr Ormarsson tryggði liðinu sigur með marki úr vítaspyrnu.

Hólmbert Aron Friðjónsson kom Fram yfir á 26. mínútu þegar hann skoraði af stuttu færi eftir fyrirgjöf frá Kristni Inga Halldórssyni sem átti mjög góðan dag á hægri kantinum. Breiðablik jafnaði aftur á móti metin í uppbótartíma í fyrri hálfleik, 1:1, en það gerði Arnar Már Björgvinsson með föstu skoti úr teignum.

Blikar komust yfir á 58. mínútu en þá skoraði danski sóknarmaðurinn Nichlas Rhode eitt skrautlegasta mark tímabilsins.

Framarar vildu meina að Rhode hefði misst boltann afturfyrir endamörk og hættu að verjast en Daninn refsaði þeim og skoraði af stuttu færi. Aðeins fjórum mínútum síðar jafnaði Kristinn Ingi Halldórsson metin, 2:2, þegar hann slapp einn í gegnum vörn Blika og skoraði af öryggi framhjá Sigmari í markinu. Fram tryggði sér svo sigurinn þegar Garðar Örn Hinriksson dæmdi vítaspyrnu á Blika á 75. mínútu. Almarr Ormarsson steig á punktinn og skoraði af miklu öryggi, 3:2, og þannig enduðu leikar.

Fram er áfram í 10. sæti Pepsi-deildarinnar með 16 stig en liðið hefði verið í fallsæti hefði það tapað gegn Breiðabliki í kvöld. Blikar eru í 8. sæti með 22 stig. Nánari umfjöllun um leikinn verður í Morgunblaðinu í fyrramálið en myndbandsviðtöl koma inn á mbl.is seinna í kvöld./////////Við eigum þetta inni og vel það ,liðið  er ekki svo slæmt,það þarf bara að ná betur saman og spila léttar,en við skulum bara vona að þessu halti fram!!!!/Halli gamli


mbl.is Fram vann Blika í fimm marka leik
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þrjú mörk Selfoss á 7 mínútum/En verða Framarar að lúta í gras og nálgast botnin!!!

Þrjú mörk Selfoss á 7 mínútum Íþróttir | mbl | 12.8.2012 | 21:05 Selfoss tryggði sér mikilvæg stig í botnbBabacar Sarr úr Selfossi og Halldór Hermann Jónsson úr Fram.aráttunni með 4:2 sigur á Fram á Selfossi í kvöld þegar leikin var 15. umferð Pepsi-deildar karla

en fyrstu þrjú mörkin í leiknum skoruðu heimamenn á sjö mínútum. Leikurinn var í jafnvægi þar til á 36. mínútu að Jón Daði Böðvarsson kom Selfoss í forystu með þrumuskoti og fjórum mínútum síðar lagði hann upp mark fyrir Viðar Örn Kjartansson, sem afgreiddi boltann laglega í netið.

Aðeins þrem mínútum síðar var Selfoss komið í 3:0 þegar Jon André Röyrane gernýtti sér mistök þegar varnarmenn Fram reyndu að gefa aftur á markvörð sinn. Gestirnir úr Safamýri tóku aðeins við sér við hvert mark og eftir hlé varð pressan enn meiri en Selfyssingar stóðu það af sér og voru frekar nær því að skora þegar Jon André Röyrane fékk galopið færi á 59. mínútu en í kjölfarið fylgdu góðar skyndisóknir Selfyssinga þar til Jón Daði skoraði aftur.

Fram gafst ekki upp og Almarr Ormarsson skoraði tvö mörk í lokin en það dugði ekki til. Selfoss og Fram mætast í 15. umferð úrvalsdeildar karla í fótbolta, Pepsi-deildarinnar, á Selfossvelli klukkan 19.15. Fylgst er með gangi mála hér á mbl.is.//////Það á ekki af okkur Framörum að ganga, engin framför að mínu mati ,og við bara förum að verma botninn með þessu framhaldi!!! en samt áfram Fram og verjumst falli/Halli gamli


mbl.is Þrjú mörk Selfoss á 7 mínútum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hafþór tryggði Grindavík stig/Mínir menn Fram eru í fallbaráttuni !!!!

Hafþór tryggði Grindavík stig Íþróttir | mbl | 8.8.2012 | 21:05 Grindavík og Fram skildu jöfn, 2:2, í botnsSjö mörk voru skoruð í fyrri leik Fram og Grindavíkur í vor.lag í 14. umferð úrvalsdeildar karla í fótbolta, Pepsi-deildarinnar, á Grindavíkurvelli í kvöld.

Hafþór Ægir Vilhjálmsson jafnaði metin fyrir Grindavík á 87. mínútu og sá til þess að liðið ætti enn von í botnbaráttunni en Framarar hefðu með sigri komist níu stigum frá Grindvíkingum. Fram er nú með 13 stig, Selfoss 8 og Grindavík 7 í þremur neðstu sætunum.

Kristinn Ingi Halldórsson kom Fram tvívegis yfir í kvöld, á 27. og 73. mínútu, en skoski miðjumaðurinn Iain Williamson skoraði fyrra jöfnunarmark Grindvíkinga á 59. mínútu.

Lið Grindavíkur: Óskar Pétursson - Matthías Örn Friðriksson, Ólafur Örn Bjarnason, Mikael Eklund, Ray A. Jónsson, Iain Williamson, Marko V. Stefánsson, Alexander Magnússon, Scott Ramsay, Magnús Björgvinsson, Tomi Ameobi. Varamenn: Loic M. Ondo, Pape Mamadou Faye, Alex Freyr Hilmarsson, Ægir Þorsteinsson (m), Björn Berg Bryde, Daníel Leó Grétarsson, Hafþór Ægir Vilhjálmsson.

Lið Fram: Ögmundur Kristinsson - Almarr Ormarsson, Alan Lowing, Hlynur Atli Magnússon, Samuel Tillen - Ásgeir Gunnar Ásgeirsson, Jón Gunnar Eysteinsson, Halldór Hermann Jónsson, Samuel Hewson, Kristinn Ingi Halldórsson, Sveinbjörn Jónasson. Varamenn: Daði Guðmundsson, Andri Freyr Sveinsson, Hólmbert Aron Friðjónsson, Orri Gunnarsson, Gunnar O. Birgisson, Stefán B. Jóhannesson, Denis Cardaklija (m)./////Því miður þekkjum við Framarar þetta að vera berjast í og við botninn,það er ekki vinsælt og manni bara verður ómótt að þetta liðs sem var spáð ofarlega!!!! er heillum horfiið því miður!! en samt áfram Fram/Halli gamli


mbl.is Hafþór tryggði Grindavík stig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

FH vann Fram með minnsta mun/Æi þetta er ekki gott að heyra fyrir okkur Framara!!!

FH vann Fram með minnsta mun Íþróttir | mbl | 30.7.2012 | 21:05 FH-ingar unnu 1:0 sigur á Fram á LaugardaAlmarr Ormarsson og Atli Guðnason eigast við í leiknum í kvöld. lsvelli í kvöld með marki Hólmars Arnar Rúnarssonar tveimur mínútum fyrir leikslok. Allt stefndu í markalaust jafntefli og hefðu það í raun verið sanngjörn úrslit þegar hann skoraði í opið markið af stuttu færi, fylgdi eftir skoti Atla Viðars Björnssonar. Ótrúlega svekkjandi fyrir Fram sem lék vel í leiknum. FH er þá komið á toppinn með 26 stig en KR getur endurheimt efsta sætið síðar í kvöld. Fram er sem fyrr í 10. sætinu með 12 stig.///////Þetta voru vonbygði við áttum allavega skilið að gera jafntefli,en svo er boltinn ekkert á að treysta,en áfram Fram,við vinnum næst/Halli gamli
mbl.is FH vann Fram með minnsta mun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045596

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband