Telur ósanngjarnt að láta almenning greiða/góð Sunndaghugvekja fyrir land og þjóð vora!!!

Telur ósanngjarnt að láta almenning greiða
Innlent | mbl.is | 10.1.2010 | 8:32

Segir byrðarnar miklu meiri á Íslendinga en eðlilegt séÍslendingar eiga skilið samúð okkar, skrifar viðskiptaritstjóri breska blaðsins Observer, Ruth Sunderland, í dag. Það að krefja Íslendinga um að greiða fyrir gjaldþrota banka er ósanngjarnt að leggja íbúana þar sem stjórnmálamenn, bankamenn og eftirlitsaðilar bera ábyrgðina, ritar hún í pistli sínum.

Hún segir sannfærandi rök fyrir því að Bretar og Hollendingar eigi ekki að beita Íslendinga hörku í Icesave-málinu. Litlar líkur séu á því að Íslendingar kjósi í þjóðaratkvæðagreiðslunni Bretum og Hollendingum í hag. Á sama tíma er erfitt að sjá góða ástæðu fyrir því hvers vegna breskir og hollenskir skattgreiðendur eigi að greiða fyrir óskammfeilna hegðun íslensku bankanna en málið er ekki svo einfalt. 

Sunderland kemur í greininni inn á það hversu fáir Íslendingar eru miðað við Breta og hve miklar byrðar leggjast á hver Íslending miðað við hvern Breta og Hollending. 

Eins bendir hún á að fjármálaeftirlit Bretlands og Hollands hafi átt að fylgjast með starfsemi bankanna og því hljóti þau að bera einhverja ábyrgð.

Hún segir að hugmyndin um alþjóðlegan skuldadómstól komi vel til greina. Að sjálfstæður  gerðardómur komi að málum þar sem reynt er að innheimta skuldir frá ríkjum sem hafa ekki bolmagn til að greiða.

Hún segir að Gordon Brown, forsætisráðherra hafi sýnt litlum fátækum þjóðum litla samúð og hann ætti að sýna Íslandi umburðarlyndi. Það sé ósanngjarnt að láta venjulegt fólk greiða fyrir misgjörðir taumlausrar „elítu" og vanrækslu stjórnmálamanna, bankamanna og eftirlitsaðila.////þetta góð Sunndaghugvekja fyrir land okkar og þjóð,og viðeigum að taka þetta alvarlega mjög,svona er sannleikurinn sagður beint og millliðalaust hún hefur mikið til sín mal og við eigum að fylgja þessu eftir,Bretar og Hollendingar einnig/Halli gamli


mbl.is Telur ósanngjarnt að láta almenning greiða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 1045453

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband