Tryggingasvik kosta þrjá milljarða ári///þetta er á okkur bætt í greiðslum!!!!

Tryggingasvik kosta þrjá milljarða ári
Innlent | mbl.is | 3.5.2010 | 9:33

Viðskiptavinir tryggingafélaganna þurfa að greiða hærri...Ný könnun Capacent Gallup fyrir Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) sýnir að meira en helmingur landsmanna er tilbúinn að tilkynna um vátryggingasvik ef hægt er að gera það nafnlaust. Gera má ráð fyrir að kostnaður vegna vátryggingasvika á Íslandi sé ekki undir þremur milljörðum króna á hverju ári en sá kostnaður lendir að lokum á viðskiptavinum tryggingafélaganna sem þurfa að greiða fyrir svikin með hærri iðgjöldum.

Vátryggingafélag Íslands hefur komið upp tilkynningasíðu á vef félagsins þar sem hægt er að láta vita nafnlaust um meint vátryggingasvik en ný könnun Capacent Gallup fyrir Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) sýnir að meira en helmingur landsmanna er tilbúinn að tilkynna um slík svik, ef hægt er að gera það nafnlaust.

Í fréttatilkynningu frá VÍS kemur fram að vátryggingasvik kosta íslenskt samfélag verulegar fjárhæðir en ætla má að um 10-15% af greiddum tryggingabótum sé vegna vátryggingasvika.

„Við hjá VÍS viljum leggja okkar að mörkum til að draga úr vátryggingasvikum, til hagsbóta fyrir bæði viðskipavini, félagið sjálft og samfélagið í heild. Því hefur verið skerpt enn frekar á stefnu félagsins varðandi vátryggingasvik,“ segir Guðmundur Örn Gunnarsson, forstjóri VÍS, í fréttatilkynningu.

Niðurstaða nýrrar könnunar Capacent Gallup fyrir Samtök fjármálafyrirtækja (SFF), um að þriðji hver Íslendingur þekki einhvern sem stundað hafi vátryggingasvik, er sláandi að mati forstjóra VÍS og ekki seinna vænna að grípa til aðgerða.////nóg er nú samt sem við þurfum að borga þó þetta bætist ekki við,þessir svikarar þurfa að nást og viðurlög hækka á dómum við slíkum brotum,þetta er sama og meira en skattsvik og ber að refsa mönnum mikið við svo aðferðir,við hinir heiðarlegu höfum nóg að borg///Halli gamli


mbl.is Tryggingasvik kosta þrjá milljarða ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 1045453

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband