Vilja viðræður við Magma /mesta lagi 40 ár+20 ára forkaupsrétt !!!!!

Vilja viðræður við Magma
Innlent | mbl.is | 18.5.2010 | 13:29

Orkuver HS Orku á Svartsengi. Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag, að taka upp viðræður við forsvarsmenn kanadíska orkufyrirtækisins Magma Energy um að nýtingarréttur HS Orku á orkuauðlindum á Reykjanesi verði takmarkaður í 40-45 ár í heild í stað 65 ára eins og samningar kveða á um.
og hugsanlegarar framlengingar á nýtingarrétti í 65 ár til viðbótar.

Einnig vilja stjórnvöld tryggja að íslenska ríkið fái forkaupsrétt í að minnsta kosti 20 ár, vilji Magma selja HS Orku aftur. Í sérstakri samþykkt ríkisstjórnarinnar kemur fram, að  hún muni leggja áherslu á endurskoðun stjórnarskrárinnar til að tryggja enn frekar eign þjóðarinnar á auðlindum landsins.

Jóhanna Sigurðardóttir, fosætisráðherra, lagði eftir langan ríkisstjórnarfund, áherslu á að ekki væri verið að selja auðlindir þjóðarinnar með kaupum Magma á HS Orku heldur leigja út nýtingarrétt. Hins vegar væri fáránlegt að hægt væri að leigja slíkan nýtingarrétt í allt að 130 ár.

Þá sagði Jóhanna, að æskilegt hefði verið að íslenskir aðilar hefðu komið að kaupum Magma á 52% hlut Geysis Green Energy í HS Orku og nefndi sérstaklega lífeyrissjóðina í því sambandi. Fram kom hins vegar í gær hjá forstjóra Magma, að lífeyrissjóðum hefði verið boðin aðild að kaupunum en þeir ekki haft áhuga.

Standa vörð um sameign þjóðarinnar

 

Samþykkt ríkisstjórnarinnar er eftirfarandi:

 

Ríkisstjórn Íslands áréttar vilja sinn til að standa vörð um sameign þjóðarinnar á náttúruauðlindum sínum. Einn af hornsteinum umhverfisstefnu ríkisstjórnarinnar er að þær séu nýttar með sjálfbærum hætti.

Til að framfylgja þessum markmiðum ríkisstjórnarinnar hyggst hún hraða lagasetningu m.a. í  samræmi við nýútkomna skýrslu á vegum sérfræðinefndar um fyrirkomulag leigu á vatns- og jarðhitaréttindum í eigu ríkisins. Megin niðurstaða nefndarinnar er að nýtingarrétti á sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar verði ekki ráðstafað nema með tímabundnum hætti og almennt eigi að miða við styttri leyfistíma en hámarkstíma samkvæmt núgildandi lögum. Það er einnig niðurstaða nefndarinnar, að undantekningarlaust eigi að taka gjald fyrir rétt til nýtingar þessara auðlinda. Þannig verði tryggt að renta af auðlindinni renni til eigenda hennar, þjóðarinnar sjálfrar.

Ríkisstjórnin mun einnig leggja áherslu á endurskoðun stjórnarskrárinnar til að tryggja enn frekar eign þjóðarinnar á auðlindum landsins. Slíkt ákvæði í stjórnarskrá er besta trygging þess, að auðlindir Íslands verði í eigu þjóðarinnar um ókomna tíð.

Loks vill ríkisstjórnin árétta, að ekki verður hróflað við eignarhaldi á orkufyrirtækjum sem eru á hendi ríkisins í tíð þessarar ríkisstjórnar. //////hárrétt hjá ríkisstjórn vorri að gera þetta svona,eins og að er að nokkuð ágætt að fá fjármagn til þessa og ef allt stendst þar,er einnig gott að hækka gjaldið til Álvera og stærri kaupanda erlendis frá ef heimilin verða ekki hækkuð og gróðurhúsin og buskapörin,svo vona maður að þetta fái bara goðar undirtektir!!!!/Halli gamli 

 


mbl.is Vilja viðræður við Magma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 1045455

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband