Segir sig úr ríkisfjármálahópi´/kona að mínu skapi Lilja Mósesdóttir !!!!!

Segir sig úr ríkisfjármálahópi
Innlent | mbl.is | 23.5.2010 | 18:25

LIlja Mósesdóttir Lilja Mósesdóttir, þingmaður VG, hefur sagt sig úr hópi stjórnarþingmanna sem undirbýr niðurskurð í ríkisfjármálum, að því er Ríkisútvarpið greindi frá. Lilja sagði í samtali við RÚV að sér hafi komið á óvart að Björn Valur Gíslason, formaður hópsins, skyldi tilkynna tillögur um skattahækkanir.

Lilja sagði að sér hafi ekki verið kunnugt um að ríkisfjármálahópurinn hafi átt að gera tillögur um skattahækkanir. Annar hópur hafi verið myndaður á vegum fjármálaráðuneytisins til að ræða um þær. Í þeim hópi hafi m.a. setið embættismenn og fulltrúar aðila vinnumarkaðarins. 

Hún taldi óheppilegt að Björn Valur skyldi koma fram í fjölmiðlum með slíkar tillögur áður en þær hafi verið ræddar innan stjórnarflokkanna.

Í fréttum Sjónvarpsins sagði Lilja að ríkisfjármálahópnum hafi einungis verið falið að koma með niðurskurð. Hún telur það ekki rétt við ríkjandi aðstæður. Lilja benti m.a. á að flýta mætti skattlagningu á séreignasparnaði til að lækka skatt á tekjulágum. Með því að taka strax skatt af inneign í séreignasjóðum og skattlagningu á séreignasparnað við inngreiðslu megi fá 80 milljarða króna.//////þetta er kona sem þorir að fara að eigin samfæringu,og það' ber að gera þarna ,það voru sjálfstæðismenn seim kom upphaflega með þessa tillögu og hún  var hundsuð,en nú ætti sko að taka þetta upp og gera ,þetta er það eins i stöðunni og vonar maður að þetta nái fram að ganga, þetta er alverlegt mal ef þessu er fleygt svona fram án samráðs við verkalýðinn og vinnumarkaðinn/Halli gamli


mbl.is Segir sig úr ríkisfjármálahópi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 11
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 53
  • Frá upphafi: 1045594

Annað

  • Innlit í dag: 11
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 11
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband