Engar varanlegar undanþágur/það höfum við alltaf vitað,en sumir ekki viljað vita!!!!

Engar varanlegar undanþágur
Innlent | mbl.is | 27.7.2010 | 13:29

Össur Skarphéðinsson, Steven Vanackere, utanríkisráðherra...„Það er ekki hægt að fá neinar varanlegar undanþágur frá lögum ESB,“ sagði Stefan Füle, stækkunarstjóri Evrópusambandsins, á blaðamannafundi í Brussel í dag þegar spurt var út í sjávarútvegsstefnu sambandsins.

Spænskur blaðamaður spurði Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hvaða atriði hann væri ekki tilbúinn til að gefa eftir í viðræðum við ESB um sjávarútvegsmál. Össur sagðist leggja áherslu á að sjávarútvegur hefði gríðarlega þýðingu fyrir efnahag Íslands og eins að fiskveiðilögsaga Íslands snerti ekki fiskveiðilögsögu neinna landa í ESB. Fiskveiðistefna ESB gerði ekki ráð fyrir slíkri stöðu og því þyrfti að taka tillit til þess.

Eftir að Össur hafði svarað spurningunni bætti Füle við að í sambandi við þessi mál yrði að hafa í huga að ESB veitti ekki varanlegar undanþágur frá lögum sambandsins./////þetta höfum við sem ekki viljum i þetta bandalag eða ESB vitað en þeir hinir sem þarna vilji inn ekki viljað vita,þetta er að tala tæpitungulaust að mínu áliti og það bara gott,þá vitum við það/Halli gamli


mbl.is Engar varanlegar undanþágur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045602

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband