Lágmarkslaun verði 200 þúsund krónur/þetta mundi maður kalla sangjarnt mjög!!!!

Lágmarkslaun verði 200 þúsund krónur
Innlent | mbl.is | 6.12.2010 | 15:46

Frá fundi samninganefnda Starfsgreinasambandsins og Samtaka... Samninganefnd Starfsgreinasambandsins kynnti samninganefnd Samtaka atvinnulífsins kröfur sínar í komandi kjarasamningum á fyrsta formlega fundi viðsemjenda. Krafan hljóðar upp á 200 þúsund króna lágmarkslaun og að almennar launahækkanir verði að koma til framkvæmda strax.

Samninganefndar Starfsgreinasambands Íslands kemur fram fyrir hönd aðildarfélaga sinna annarra en Eflingar stéttarfélags, Verkalýðsfélagsins Hlífar og Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur.

Á vef sambandsins segir að samninganefnd Starfsgreinasambandins vilji „stuðla að stöðugleika svo að takast megi að auka kaupmátt, skapa ný störf og  létta á böli atvinnuleysisins og þeim fjárhagsvanda sem fjölskyldur í landinu glíma við. Almennar launahækkanir verða að koma til framkvæmda strax og gerð er krafa um 200.000 króna lágmarkslaun. “

Meginmarkmið samninganefndarinnar er að endurheimta þann kaupmátt sem glatast hefur frá upphafi efnahagshrunsins á Íslandi haustið 2008, minnka atvinnuleysið og tryggja hinum lægst launuðu auknar kjarabætur. Til þess þarf stöðugleika á vinnumarkaði og vinnufrið, sem er meðal annars forsenda fyrir því að efnahagslegur stöðugleiki náist, segir í yfirlýsingunni.

Þar segir ennfremur að stefna  verði að stöðugum gjaldmiðli og skapa skilyrði fyrir erlendar fjárfestingar til að örva atvinnulífið. Séu þessar forsendur ekki til staðar verður að skapa þær með þverpólitískri samstöðu á næstu vikum og misserum.

Takist það ekki horfir til verulegrar óvissu á vinnumakaði og harðvítugari kjarabaráttu en ella þyrfti að verða, segir einnig í markmiðslýsingu kröfugerðar samninganefndar Starfsgreinasambandsins sem hér fer á eftir:

1: Meginmarkmið

Það er meginmarkmið samninganefndar SGS að endurheimta þann kaupmátt sem glatast hefur frá upphafi efnahagshrunsins á Íslandi haustið 2008, minnka atvinnuleysið og tryggja hinum lægst launuðu auknar kjarabætur. Til þess að ná þessu markmiði þarf stöðugleika á vinnumarkaði og vinnufrið, sem er meðal annars forsenda fyrir því að efnahagslegur stöðugleiki náist. Starfsgreinasamband Íslands hefur lagt sitt af mörkum til þess að þjóðin geti unnið sig út úr þeim efnahagsvanda sem við er að glíma og er tilbúið til að gera það áfram. Samninganefnd Starfsgreinasambandins vill í komandi kjaraviðræðum stuðla að stöðugleika svo að takast megi að auka kaupmátt, skapa ný störf og létta á böli atvinnuleysisins og þeim fjárhagsvanda sem fjölskyldur í landinu glíma við.

2: Launakröfur og kaupmáttaraukning

Samningnefnd Starfsgreinasambandsins leggur áherslu á annars vegar beinar launahækkanir og hins vegar að stjórnvöld sýni staðfestu sem geti leitt til aukins kaupmáttar m.a. með hækkun persónuafsláttar og tekjuskattsbreytingum í þágu hinna lægst launuðu  auk annarra efnahagsúrræða. Almennar launahækkanir verða að koma til framkvæmda frá 1. desember 2010 og að lágmarkslaun verði kr. 200.000 frá sama tíma. Auk almennra launahækkana leggur samninganefndin meðal annars áherslu á tilfærslu starfsheita í launatöxtum og breytingu á reiknitölum kaupaukakerfa.

3: Þverpólitísk samstaða

Samninganefndin ítrekar þá megin áherslu sína að endurheimta verði glataðan kaupmátt með öllum tiltækum samfélagslegum úrræðum, en til þess verða að vera efnahagslegar og pólitískar forsendur. Sú ábyrgð hvílir á stjórnvöldum og Alþingi. Pólitísk staðfesta er lykill að trausti og um leið að samkomulag á vinnumarkaði eins og Stöðugleikasáttmálinn frá því í júní 2009 haldi í raun. Stefna  verður að stöðugum gjaldmiðli og skapa skilyrði fyrir erlendar fjárfestingar til að örva atvinnulífið. Séu þessar forsendur ekki til staðar verður að skapa þær með þverpólitískri samstöðu á næstu vikum og misserum. Takist það ekki horfir til verulegrar óvissu á vinnumakaði og harðvítugari kjarabaráttu en ella þyrfti að verða./////þetta mundi maður kalla sangjarnt mjög og ekki frekt ,svo og hækka persónuafslátt lægstu launa,og svo hækka bara önnur laun í króntölu ekkert annað á meðan þessi kreppa gengur yfir,svo spyrjum við aftur og aftur hvað hafa þessir menn sem stjórna, í þessu sambabandi og verklýðsfélögum mikil laun eru þau ekki of há og svo margra annarra sem mætti lækka,en verður það gert,það er spurning/Halli gamli


mbl.is Lágmarkslaun verði 200 þúsund krónur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

létta á böli atvinnuleysisins ???

Þetta eykur atvinnuleysið kallinn minn

Yeboah (IP-tala skráð) 7.12.2010 kl. 01:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband