Hlynntur núverandi samningi/Nú koma menn og fréttastofur i hrönnum á móti ákvörðun Forseta okkar!!!

Hlynntur núverandi samningi
Innlent | mbl.is | 21.2.2011 | 12:04

Ragnar H. Hall. Ragnar. H. Hall, lögmaður, sagði í fréttum Bylgjunnar, að hann væri hlynntur því að Icesave-samningurinn, sem nú liggur fyrir, verði samþykktur.

Ragnar var andvígur samningnum, sem gerður var árið 2009 og felldur í þjóðaratkvæðagreiðslu á síðasta ári. 

Ragnar sagði, að ef endanleg niðurstaða dómstóla yrði sú að Íslendingar hafi á einhvern hátt vanrækt skyldur sínar gagnvart innlánstryggingasjóði, yrði það mikill skellur og ekki væri verjandi að taka þá áhættu.////nú byrjar ballið að hræða fólk ekki spurning bæði fréttir og menn tala út i eitt að við séum að gera þarna vitleysu ,og svo allir vildu lilju hveðið hafa bara borga og ekkert annað,það er sagt að dómur sé tapaður fyrirfram og svo framvegis,en þetta er önnur hliðin hin er ekki svona það ber að hlýta á báðar með og a´móti og kjósa svo um þetta að heiðarlegum grundvelli,það viljum við öll það er nógur tíminn að hugsa þetta betur og ekki láta okkur bjarga það sem við ekki þurfum/Halli gamli


mbl.is Hlynntur núverandi samningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Púkinn

Það eru margir sem líta þannig á að núverandi samningur sé það illskásta í stöðunni.   Vandamálið við dómstólaleiðina er að hætt er við að Bretar og Hollendingar geri þá kröfu að innistæðueigendum föllnu bankanna verði ekki mismunað eftir staðsetningu útibúa.

Málið er nefnilega það að þótt það megi rökstyðja að íslenskum stjórnvöldum hafi aldrei borið stylda til að bjarga innistæðueigendum umfram það sem tryggingarsjóðurinn dugði til, þá er staðreyndin sú að það var gert, en aðeins fyrir útibú á íslandi - ekki útibú erlendis.  

Ég er ekki löglærður, en þetta lítur út eins og mismunun - og ef Bretar/Hollandingar vinna mál á þeim forsendum, þá verður niðurstaðan fyrir Ísland mun verri en fyrirliggjandi samningur.

Púkinn, 21.2.2011 kl. 12:58

2 identicon

Hvaða hvaða, hann segir bara að honum lítist vel á þennan samning, ekkert um það hvort hann sé á móti ákvörðun forsetans.  Fólk verður að skoða samninginn og meta hann en ekki dæma fyrirfram.

Skúli (IP-tala skráð) 21.2.2011 kl. 13:27

3 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Hjá þeim sem vilja ekki borga krónu þá var Ragnar H Hall fremsti lögfræðignur á Íslandi  jafnvel í heiminum á sínum tíma. Þegar Ragnar var á móti Icesave

En núna er Ragnar bara áróðursmaskína útaf þið hafið öðrvísi skoðun en hann núna.

Halli mundir þú kalla hann "forsetann okkar" ef hann hefði skrifað undir.... held ekki. 

Sleggjan og Hvellurinn, 21.2.2011 kl. 18:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 1045453

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband