Vill breyta 26. greininni//ekki af baki dottinn gamli lýðræðissinnin og fl.

Vill breyta 26. greininni
Innlent | mbl.is | 22.2.2011 | 14:32

Steingrímur J. SigfússonSteingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra segist telja nauðsynlegt að ræða breytingar á 26. gr. stjórnarskrárinnar um synjunarvald forseta. Fleiri þingmenn tóku undir þetta sjónarmið í umræðum á Alþingi.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hóf umræðu utan dagskrár á Alþingi í dag um ákvörðun forseta Íslands að synja lögum um Icesave staðfestingar. Bjarni sagði að viðbrögð stjórnvalda bentu til þess að ríkisstjórnin hefði ekki verið undirbúin undir þessa ákvörðun forsetans. Svo hefði verið í fleiri málum. Hann sagði að Sjálfstæðisflokkurinn treysti þjóðinni til að taka upplýsta ákvörðun í þessu máli.

Bjarni sagði að Sjálfstæðisflokkurinn hefði alla tíð verið tilbúinn til að ræða breytingar á 26. gr. stjórnarskrárinnar um synjunarvald forseta Íslands. Í vinnu stjórnarskrárnefndar á árunum 2006-2007 hefði hefðu fulltrúar flokksins hvatti til þess að þessari grein yrði breytt eða hún afnumin, en þá hefðu fulltrúar annarra flokka lagst gegn því. Hann spurði Steingrím hvort hann vildi breyta þessari grein nú.

Steingrímur sagðist vera tilbúinn til að ræða breytingar á þessari grein. „26. gr. er hér undir og ég get tekið undir það að við hljótum að þurfa að velta ýmsu fyrir okkur í þessu sambandi, þar á meðal t.d. því hvort að það eigi að skipta máli hversu umdeild mál eru þegar þau fara í gegnum þingið ef synjunin er um að þau öðlist ekki staðfestingu; hvort það skipti máli hvort þar er minnsti mögulegi meirihluti eða hvort þar er t.d. aukinn meirihluti. Persónulega er ég líka þeirrar skoðunar að við eigum að taka til skoðunar hvort að þessum rétti sé ekki betur fyrir komið með skilgreindum hætti og þá um þau mál sem menn eru sammála um að séu til þess fallin að fara í þjóðaratkvæði hjá þjóðinni sjálfri. Sömuleiðis kemur til greina það fyrirkomulag sem t.d. er í stjórnarskrá Dana, að skilgreindur minnihluti þingmanna getur vísað máli í þjóðaratkvæði,“ sagði Steingrímur.

Bjarni sagði það mikil tíðindi að fulltrúar allra flokka á þingi, nema Framsóknarflokksins, hefðu lýst yfir stuðningi við hugmyndir um að breyta 26. greininni

.////Einræðisklíkuskapur er þetta Alþingi að verða ,hvað er í gangi þarna við sem höfum lifað tímana tvenna höfum heyrt þetta áður og vel það hjá okkar mönnum sjállfstæðismönnum ,en ekki vinstri mönnum fyrr ,allt er hverfult og áð synir sig nú þegar þeim hentar bara breyta lögum!!! og þarna kemur inn Bjarni Ben.og segir þetta það er naumast að það hefur aftur orðið stefnubreyting hjá minum  flokki ,það er talað um að  grafa það gamla en það bara tekið upp aftur af því það hentar einræði, að ég hiklaust kalla,Steingrími og Jóhönnu er til,þessa trúandi enda mun líf þeirra liggja við en ekki okkar skil ekki orðið minn flokk satt að segja,hvað hangir a´spýtuni spyr maður bara/Halli gamli


mbl.is Vill breyta 26. greininni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045596

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband