Icesave-málið ekki það stórt !!!!!

Icesave-málið ekki það stórt
Innlent | mbl.is | 23.2.2011 | 21:05

Sölvi TryggvasonSteingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra var gestur í Spjallinu með Sölva á Skjá einum í kvöld. Þar ræddi hann m.a. um samskipti sín við Forsetan i siðastliðna mánuði.

mmAðspurður hvort hann hefði slitið öll samskipti við Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, í janúar 2010 eftir að Icesave-lögunum var synjað taldi Steingrímur það ekki vera rétt. Sölvi benti á að þeir tveir hefðu ekki hist á tveggja manna fundum frá þeim tíma, líkt og tíðkaðist hjá forseta og fjármálaráðherra, sagði Steingrímur: „Staðreyndin er sú að forsetinn hefur ekki óskað eftir slíkum fundum með mér.“

Steingrímur sagði hvorki hann né Jóhönnu Sigurðardóttur hafa íhugað breytingu á 11. grein stjórnarskrárinnar, þar sem mælt er fyrir að þingið víki forsetanum með stuðningi meirihluta þingsins. „Þetta er hugsað sem alger öryggisventill. Það þarf 3/4, ef ég man rétt, þingmanna til að samþykkja og síðan fer það í þjóðaratkvæði. Það er nú mikið á menn lagt að fara að standa í slíku,“ sagði Steingrímur og bætti við að stutt væri í næstu forsetakosningar.

Þá bar Sölvi þessa spurningu upp: „Í hjarta þínu, ef þú værir í stjórnarandstöðu, heldurðu að þú værir ekki hlynntur því að þetta mál færi í þjóðaratkvæðagreiðslu?“ Steingrímur svaraði: „Nei ég efast um það vegna þess hvernig það er vaxið. Ég tel, og það kannski hneykslar einhverja, en ég ætla að segja það samt. Ég tel þetta mál ekki svo stórt.“//////einmitt af því ætti þetta að fara fyrir fólkið i landinu i atkvðægreislu,hverlags traust hefur hann i okkur ekkert eða hvað??? en svo eru frekir menn þeir treysta engum nema sjalfum sér ein og þarna kemur fram Halli gamli


mbl.is Icesave-málið ekki það stórt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045596

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband