Minna til ráðstöfunar/ kvað er að þessri reiknisaðferð bara 0,1% það er bara lýgi og ekkert annað!!!!

Minna til ráðstöfunar
Innlent | mbl.is | 8.3.2011 | 21:31

Hækkanir á gjaldskrám orkuveitna hafa mest áhrif á hækkun... Hækkanir á gjaldskrám sveitarfélaga og á ýmsum gjöldum ríkisins frá áramótum valda 0,91% hækkun á vísitölu neysluverðs. Ráðstöfunartekjur heimila dragast saman um 0,1% vegna breytinga á sköttum og breytingum í bótakerfunum á þessu ári.

Þetta kemur fram í úttekt vinnuhóps á vegum ríkissáttasemjara en í honum sátu 12 fulltrúar allra heildarsamtaka á vinnumarkaði og viðsemjenda þeirra.

Vinnuhópurinn lagði mat á áhrif aðgerða í fjármálum ríkisins og sveitarfélaga sem gengu í gildi frá seinustu áramótum á verðlag og ráðstöfunartekjur.

Í greinargerð hópsins kemur fram að mest áhrif til hækkunar á verðlagi hafa hækkanir á gjaldskrám orkuveitna fyrir hita og raforku sem valda 0,49% hækkun á neysluverðsvísitölunni. Hækkanir á vörugjöldum á eldsneyti, áfengi og tóbaki valda 0,21% hækkun.

Fram kemur að gjöld vegna heilbrigðisþjónustu hækka um 0,9% á árinu, lóðarleiga sveitarfélaga um 16,4%, sorphreinsun hækkar um 18,7%, holræsagjöld um 11,7% og fargjöld strætisvagna um 13,9%.

Við mat á verðlagsáhrifunum var stuðst við útreikninga Hagstofunnar.

Mismikil áhrif eftir fjölskyldugerðum

Vinnuhópurinn lagði einnig mat á áhrif breytinga á sköttum og tilfærslu- og bótakerfum ríkis- og sveitarfélaga, auk sérstakrar vaxtaniðurgreiðslu á ráðstöfunartekjur heimilanna.

„Í heildina dragast ráðstöfunartekjur saman um 0,1% vegna aðgerðanna en þegar áhrifin eru skoðuð eftir fjölskyldugerðum má sjá að ráðstöfunartekjur einstæðra foreldra aukast nokkuð eða um 1,6%. Ef frá eru talin áhrifin af sérstöku vaxtaniðurgreiðslunni hefðu ráðstöfunartekjur dregist saman um 0,9% í heildina, mest hjá hjónum og sambúðarfólki um 1%. Einnig er skoðað sérstaklega hver heildaráhrif á ráðstöfunartekjur hefðu orðið ef auk ofangreindra aðgerða hefði komið til hækkun á persónuafslætti á árinu 2011 um 3.000 krónur auk verðlagsuppfærslu, líkt og áformað var. Miðað við þær forsendur hefðu ráðstöfunartekjur aukist í heildina um 1,2% en um 3% hjá einstæðum foreldrum,“ segir í skýrslu vinnuhópsins.

Ítarlega er fjallað um áhrif aðgerða og breytinga í opinberum fjármálum á ráðstöfunartekjur fjölskyldna í Morgunblaðinu á morgun.////Maður er ekki mikill starfsfræðingu,r en þetta getur ekki staðist ,við sem verðum fyrir þessu hljótum öll að mótmæla svona  vittlausum reikning ,þetta er ekki til i dæminu og engin skal geta samfært mig um annað,allir eru að missa sig í þessu að fa´ekki það sem þeim ber út úr sinni vinnu kaupmattur minkar og minkar og svo er það sagt bara 0,1% í Vistölu hvernig er hún reiknuð skilur maður ekki,og mun ekki gera við finnum það best sjálf/Halli gamli


mbl.is Minna til ráðstöfunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Vísitalan er og hefur verið fölsuð í langan tíma, og verður það áfram, á meðan þessi stjórn situr!!!

Eyjólfur G Svavarsson, 8.3.2011 kl. 23:16

2 Smámynd: Júlíus Björnsson

Húsnæðikostnaður sér i lagi þinglýstar vaxtaskuldir kallast strangt til tekið ekki rástöfunartekjur erlendis.  Ráðstöfunar tekjur er þær sem val er um að spara.

Hér tíðkast mjög furðuleg málnotkun í dag. Ekki furða að menn vilda halda fast í fornar merkingar meðan allt gekk upp.  

Júlíus Björnsson, 10.3.2011 kl. 06:20

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 46
  • Frá upphafi: 1045573

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 43
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband