Osama bin Laden allur/mikið söguleg persona látin: en ekki harmdauði flestra!!!!

Osama bin Laden allur
Erlent | AFP | 2.5.2011 | 4:45

Mynd af Osama bin Laden frá 1998.Hryðjuverkaleiðtoginn Osama bin Laden er látinn, en hann lést í gær eftir skotbardaga við bandaríska sérsveitarmenn í Pakistan. Barack Obama, Bandaríkjaforseti, sagði í nótt að réttlætinu hefði verið fullnægt, áratug eftir hryðjuverkaárásirnar á Bandaríkin 11. september.

Obama tilkynnti þegar í ræðu í Hvíta húsinu í nótt. Mikill mannfjöldi safnaðist saman utan við Hvíta húsið í Washington um miðnætti að bandarískum tíma. Veifaði fólkið fánum og hrópaði: Bandaríkin, Bandaríkin. 

„Í kvöld ég skýrt bandarísku þjóðinni og heiminum frá því að Bandaríkin hafa staðið fyrir aðgerð þar sem Osama bin Laden, leiðtogi Al-Qaeda og hryðjuverkamaður sem ber ábyrgð á morðum á þúsund saklausra, karla, kvenna og barna, var drepinn," sagði Obama.

Forsetinn sagðist hafa skipað bandarískum sérsveitum að ráðast á bækistöðvar bin Ladens í Abbottabad í Pakistan en vísbendingar höfðu borist um það í ágúst að bin Ladin hefðist þar við.

Fámennur hópur sérsveitarmanna hefðu gert árásina. Engan þeirra hefði sakað og þess hefði verið gætt að enginn óbreyttur borgari léti lífið. Til skotbardaga kom, Osama bin Laden hefði fallið og Bandaríkjamenn hefðu haft lík hans á brott með sér.   

Stór hópur fólks safnaðist saman framan við Hvíta húsið í Washington í nótt þegar fréttir bárust af því að Osama ... Reuters

 

Turnar World Trade Center í New York brenna eftir að flugvélum var flogið á þá 11. september 2001. Reuters

 

Bandarískir embættismenn sögðu, að auk bin Ladens hefðu þrír karlmenn og kona látið lífið í árásinni, þar á meðal sonur hryðjuverkaleiðtogans. Tveir mannanna störfuðu sem sendiboðar fyrir bin Laden. Konan lét lífið þegar einn karlmannanna reyndi að  nota hana sem skjöld. Tvær konur til viðbótar særðust.

Sagði embættismaðurinn, að skotbardaginn hefði staðið í um 40 mínútur.

Obama varaði jafnframt við því, að hryðjuverkasamtökin Al-Qaeda muni áfram reyna að gera árásir á Bandaríkin þrátt fyrir fráfalls bin Ladens.

George W. Bush, sem var Bandaríkjaforseti þegar hryðjuverkaárásirnar voru gerðar, sagði í nótt að þetta væru afar þýðingarmikið afrek. Óskaði hann Obama og bandarísku leyniþjónustinni til hamingju. 

David Cameron, forsætisráðherra Bretands, sagði í nótt að fólki um allan heim væri létt að heyra þessar fréttir.  

Pakistanska leyniþjónustan staðfesti einnig, að bin Laden væri allur. Obama sagðist hafa hringt í Asif Ali Zardari, forseta Pakistans, eftir aðgerðina og bætti við að samvinna við Pakistana hefði leitt bandarísku leyniþjónustuna á sporið. ///loksins tókst þeim þetta og það gott að mörgu leiti ekki spurning en Bandarækjamenn notuðu kall lengi við aðstoða sig mikið en svo slettist uppá þarna vinskapinn og hann skipulegði árásir á  þá með hruni turnana 11 sept. og fleiri ekki spurning að þetta var sögulegur maður að ekki sé meira sagt ekki að bara að endemum,en það eru lok hans hryðjuverka að mans áliti en það eru einhverjir sem taka við,en það er fagnað i hinum vestræna heimi ekki spurning,og það að vonum,en ein kemur þá annar fer segir máltækið og það mun sennilega gerast/Halli gamli


mbl.is Osama bin Laden allur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045596

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband