72% dýrara að kaupa reiðhjól/ kemur ekki skattmann þar sterkur inn?????

72% dýrara að kaupa reiðhjól
Innlent | Morgunblaðið | 20.7.2011 | 5:30

Ekki verður litið framhjá kostum þess að nota reiðhjól til... Verð á reiðhjólum hefur hækkað um 72,2% á síðustu þremur árum. Þetta er miklu meiri hækkun en á bílum sem hafa hækkað um 32,2% á sama tíma. Innflytjendur segja ýmsar skýringar á þessum hækkunum, s.s. gengisbreytingar, hækkun á flutningskostnaði og verðhækkanir erlendis.

Gríðarleg sprenging varð í innflutningi á reiðhjólum á árinu 2007, en þá seldust um 27 þúsund hjól. Síðustu ár hefur salan verið 13-14 þúsund hjól.

Ágúst Ágústsson, markaðsstjóri hjá GÁP, segir að fyrir hrun hafi margir verið að kaupa leiktæki þegar þeir keyptu hjól, en nú séu menn að kaupa hjól sem farartæki. Hann segir að flutningskostnaður hafi tvöfaldast frá hruni og kaupverð hafi jafnt og þétt hækkað. Þetta hafi að sjálfsögðu mikil áhrif á verðið.

Jón Pétur Jónsson, framkvæmdastjóri Arnarins, segir ekki annars að vænta en að verðið hækki þegar gengi krónunnar falli svona mikið. Verð erlendis sé líka á uppleið. ///// ekki má gleyma skattmann þarna fólk er kvatt til að hjóla og spara og einnig heilsunar vegna,en Tollar vörugjöld virðisauki hækka þetta um helming,hvernig væri að lækka það S.J.S./Halli Gamli
mbl.is 72% dýrara að kaupa reiðhjól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Jóhann Hallgrímsson

Innflytjendur segja hækkunina vegna gengisbreytinga, hækkana erlendis og aukins flutningskostnaðar.

Þú getur bölvað þér upp á að væri skattlagning með öðrum hætti en verið hefur myndu þeir ekki liggja á því. 

Hækkun flutningsgjalda virðist hafa lagst þyngra á reiðhjól en aðra vöru samkvæmt þessu. En eitt minnast höfðingjarnir ekkert á og það er hækkun á eigin álagningu, sem útskýrir sennilega bróðurpartinn af hækkuninni.

Axel Jóhann Hallgrímsson, 20.7.2011 kl. 08:56

2 Smámynd: Morten Lange

Samt eru afar góð rök með því að lækka eða fjarleggja tolla og gjöldum af reiðhjólum, amk í eins miklu mæli og v. "græna" bíla.

Sjá bloggfærslu Ómars um þessa frétt og sömuleiðis færslu Landssamtaka hjólreiðamanna  : http://lhm.blog.is/blog/lhm/entry/1180200

Morten Lange, 20.7.2011 kl. 12:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 45
  • Frá upphafi: 1045572

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband