Umboðsmaður kannar útreikninga/Þetta er allavega á gráu svæði,eg ekki svörtu !!!

Umboðsmaður kannar útreikninga
Innlent | mbl.is | 16.8.2011 | 18:39

 Umboðsmaður Alþingis er að kanna hvort verðtrygging lána hafi verið vitlaust reiknuð frá upphafi, að því er fram kom í fréttum RÚV og Stöðvar 2 í kvöld. Hann hefur óskað eftir gögnum og skýringum frá Seðlabankanum.
Andrea J. Ólafsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, sagði í viðtali við RÚV að ekki væri heimild í lögum til að verðbæta höfuðstól lána. Eingöngu væri heimild til að verðbæta afborganir, þ.e. greiðslur. Ekki væri heldur heimild til þess í núgildandi lögum að bæta verðbótum ofan á höfuðstólinn

Samtökin leituðu til umboðsmanns Alþingis sem hefur óskað eftir skýringum frá Seðlabankanum. Í bréfi umboðsmanns til bankans segir að af þeim gögnum sem hann hafi kynnt sér verði ekki fyllilega ráðið hvernig framkvæmd þessara mála hefur verið og því óski hann eftir því að bankinn afhendi gögn sem hann telji að geti skýrt útreikning verðtryggingar.////Við nánari skoðun hefur maður lengi verið að undrast þetta og að vel athuguðu máli er þetta ekkert nema tilbúin þjófanaður eins og svo margt sem þú er látin borga,þetta bankakerfi mun  hafa ótal lögfræðinga sem reina að verja þessi smáu letur sem þeir setja inn ég er allavega viss að þetta er ólöglegt/kemur i ljós/Halli gamli


mbl.is Umboðsmaður kannar útreikninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrannar Baldursson

Mikið er ég sammála þér. Þetta er svo ranglátt og hlýtur að vera ólöglegt, sama hversu fingrafimir sumir viðskipta- og lagatæknar geta verið.

Hrannar Baldursson, 16.8.2011 kl. 20:23

2 identicon

Þetta er ekki bara á gráu svæði heldur kolsvörtu!!

Sigrún Jóna (IP-tala skráð) 16.8.2011 kl. 20:27

3 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Opinberar verndaðar glæpastofnanir, sem þarf að fara að taka á þó fyrr hefði verið!

Eyjólfur G Svavarsson, 16.8.2011 kl. 20:43

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Í stuttu máli þá tvírekna þeir verðtrygginguna, fyrst á höfuðstól, og svo á hverja afborgun, þannig að þú er alltaf að borga verðtrygginguna í öðru veldi.

Það er enginn lagastoð fyrir margfaldri verðtryggingu.

Guðmundur Ásgeirsson, 16.8.2011 kl. 20:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045601

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband