Eldri borgarar taka út peninga/er það nema von með neikvæða vexsti!!!!!

Eldri borgarar taka út peninga
Innlent | mbl.is | 29.8.2011 | 16:47

Íbúðir fyrir eldri borgara Það hefur færst í vöxt að eldri borgarar taki út fé af bankareikningum og leggi inn á bankahólf. Ástæðan er skerðing bóta vegna vaxtatekna, hærri fjármagnstekjuskattur og neikvæðir raunvextir af innistæðum vegna verðbólgu, að sögn Jónu Valgerðar Kristinsdóttur, formanns Félags eldri borgara.

Eins og fram kom á fréttavef Morgunblaðsins í gær eru uppi hugmyndir innan Vinstri grænna um að hækka fjármagnstekjuskatt í 30%.

Vextir langt undir verðbólgu

Jóna Valgerður varar eindregið við slíkri hækkun en skatturinn var sem kunnugt er 10% fyrir fjármálahrunið.

„Það væri fáranlegt að hækka fjármagnstekjuskattinn. Það er þegar búið að tvöfalda hann. Þá hafa raunvextir verið neikvæðir. Ég veit um eldri borgara sem hafa tekið fé sitt út af bankabókum og lagt inn á bankahólf. Fólk fær 2,2-2,5% vexti. Til samanburðar er verðbólgan nú um 5%.

Svo eru verðbætur líka skattlagðar. Ég hef tekið þátt í starfi endurskoðunarnefndar um almannatryggingar og þekki því vel til þessara mála. Fjármagnstekjuskatturinn á ekki að reiknast út frá vaxtatekjum að fullu, enda eru vextir í mörgum tilfellum neikvæðir.“

Verðbólgan þýðir neikvæða raunvexti

En hvaða áhrif hefði hækkun fjármagnstekjuskatts í 30% á hag eldri borgara sem hafa lagt fyrir fé á lífsleiðinni?

„Það hefði gífurleg áhrif. Vaxtatekjur eru reiknaðar að fullu sem viðbótartekjur og koma þar með til skerðingar á bótum almannatrygginga.Tekjurnar draga því úr þeim bótum sem fólk á rétt á jafnvel þótt raunvextir séu neikvæðir.

Ég hefði ætlað að ríkisstjórnin legði metnað sinn í að stuðla að auknum sparnaði. Sú hækkun á fjármagnstekjuskatti sem þarna er rætt um myndi draga úr áhuga fólks á sparnaði. Það myndi jafnframt færast í vöxt að fólk tæki út fé og setti inn á bankahólf. Margir eldri borgarar horfa þegar fram á rýrnun sparifjár síns vegna verðbólgunnar,“ segir Jóna Valgerður.///þetta sjá allir sem vilja að gengur ekki ,það er svona farið með peninga sem fólk fær í sparnað til elliáranna og siðan er verið að tala um að spara ,auðvitað tekur fólkið þetta út þegar búið er að hækka skattinn um 100% úr 10% i 20% svo er tala' um að borga 30%  er nokkur sem þessum mönnum i V.G. er heilagast nei það er það ekki,bara eftir að klára þetta með því að eyða okkur!!!/Halli gamli


mbl.is Eldri borgarar taka út peninga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

segðu

Ásdís Sigurðardóttir, 30.8.2011 kl. 10:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 6
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 48
  • Frá upphafi: 1045575

Annað

  • Innlit í dag: 6
  • Innlit sl. viku: 45
  • Gestir í dag: 6
  • IP-tölur í dag: 6

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband