Samfélagsmiðlar mikilvægari en ríkisstjórnir/Frábært að framkvæma þetta Þetta fyrir landið okkar,og allan heimin!!!

Samfélagsmiðlar mikilvægari en ríkisstjórnir
Innlent | mbl.is | 21.10.2011 | 20:02
Ólafur Ragnar Grímsson og Dorrit Moussaieff tóku í dag þátt...Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, segir að samfélagmiðlar á borð við Facebook og YouTube séu orðnir mikilvægari í alþjóðamálum en ríkisstjórnir.

„Þessir svonefndu samfélagsmiðlar hafa breytt lýðræðisstofnunum okkar þannig, að það sem fer fram í hefðbundnari valdastofnunum, þingum, ráðuneytum, jafnvel Hvíta húsinu eða forsetaembættinu og ríkisstjórninni í mínu landi, er nánast á hliðarlínunni," sagði Ólafur Ragnar í viðtali við sjónvarpsstöðina CNN.

„Ég veit að þetta er mikil yfirlýsing, einkum frá manni sem hefur varið stærstum hluta lífs síns innan þessara stofnana. En kraftur samfélagsmiðla er, að mínu viti, að breyta stjórnmálunum með slíkum hætti, að ég tel vonlaust að hinar hefðbundnu, formlegu stofnanir lýðræðiskerfa geti fylgt því eftir."

Í viðtalinu segir Ólafur Ragnar að mótmælaaðgerðir, sem skipulagðar séu gegnum samfélagsmiða, beri vott um heilbrigði í samfélögum. Þá segir hann, að Íslendingar geti nýtt sér nýja tækni til að ná áttum eftir efnahagshrunið.

„Það hefur alltaf verið Íslendingum mikilvægt að lesa og skapa bókmenntir. En þessi áhugi færðist yfir á tölvur, vefi, farsíma og þessháttar með tæknibyltingunni. Ísland er nú í fremstu röð á þessum sviðum og nú er komin fram ný kynslóð, sem stofnar fyrirtæki í þessari starfsemi," hefur CNN eftir Ólafi Ragnari.

CNN segir, að á myndbandi sem nú hefur birst víða sjáist forsetinn sitja við borð og bjóða gestum og gangandi í pönnukökur.

„Þetta er frábær hugmynd vegna þess að hún undirstrikar að íslenskt samfélag er opið og vingjarnlegt. Þetta er eitt þeirra landa þar sem fólk gerir ráð fyrir að allir gestir séu vinir nema annað komi í ljós. Víðast hvar er þróunin á hinn veginn og þar reikna menn með því að það stafi ógn af öllum nema annað komi í ljós."

„Hann segir að pönnukökuboðið standi og hann muni bera þær fram eins og amma hans gerði, með rjóma og sultu. 

„En ég ætla ekki að opna pönnukökuveitingahús. Þetta er mun smærra í sniðum////vel sagt hjá Forseta vorum ,þetta er frábært að hafa í huga,þetta er staðreynd að þetta er að virka í lýðræðinu ekki spurning!!!/eins þetta með gestamóttöku okkar vegna ferðamanna/Halli gamli 


mbl.is Samfélagsmiðlar mikilvægari en ríkisstjórnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Góða helgi Halli minn.

Ásdís Sigurðardóttir, 22.10.2011 kl. 11:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 1045453

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband