Telja hótel handan við hornið/Fram haldið með eyðileggningu gömlu hafnarinnar!!!!

Telja hótel handan við hornið
Innlent | Morgunblaðið | 10.11.2011 | 5:30
Ráðstefnu og tónlistarhúsið Harpa við ReykjavíkurhöfnViðræður við svissneska fjárfestingafélagið World Leisure Investment um að byggja lúxushótel við hlið Hörpu ganga vel og er stefnt að því að skrifa undir samning fyrir áramót, að sögn Péturs J. Eiríkssonar, starfandi stjórnarformanns Situsar, en það félag fer m.a. með lóðaréttindi í nágrenni Hörpu.

„Það er góður gangur í viðræðunum,“ segir Pétur en næsti fundur með svissneska félaginu, sem á sér þýskt móðurfélag, er í dag.

Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er nú stefnt að því að reisa fimm stjörnu hótel með rúmlega 260 herbergjum sem yrði rekið undir merkjum Marriott-hótelkeðjunnar.

Lóðin var boðin út fyrr á þessu ári og átti World Leisure Investment hagstæðasta tilboðið í lóðina, 1,8 milljarða króna. Meðbjóðandi var íslenska verkfræðistofan Efla.

Verði ritað undir samninga um áramót er talið að hvers kyns pappírsvinna, vinna við teikningar og fleira taki um hálft ár. Hægt yrði að byrja á framkvæmdum á næsta ári en miðað er við að hótelið verði opnað vorið 2015. „Það er best að opna hótel að vori,“ segir Pétur.///áfram verður haldi með að eyðileggja okkar gömlu höfn,og þarna verur þetta náturnlega engin kemst leiðar einnar vegna þessa allt orðið fullt af bilastæðum og umferð um Hótel og Hörpu annað kemst ekkert að, við sem eldri erum eru bara dæmdir úr leik með mega ekki sjá okkar gömlu svæði og höfnina,við erum sennilega bara best geymd í kirkjugarðinum,enda hjotum  við að lenda þar fyrr en seinna ,eftir greiningu  i heilsugæslu og nú siðast í fréttum, engin meðul nema á okur verði svo það kemur af sjálfum sér allt!!!! /Halli gamli


mbl.is Telja hótel handan við hornið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 1045618

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband