Allir fái veiðiheimildir/Ekki er maður sammála þessu nema varlega mjög!!!!

Allir fái veiðiheimildir
Innlent | mbl.is | 15.11.2011 | 21:08
Pétur H. Blöndal alþingismaður. Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hyggst leggja fram frumvarp á Alþingi um nýja lausn á fiskveiðistjórnunarfrumvarpinu. Gerir frumvarpið m.a. ráð fyrir að veiðiheimildum verið dreift á alla íbúa landsins, þannig að þeim verði heimilt að hagnýta þær í 40 ár frá úthlutunardegi.

Pétur segir í tilkynningu til fjölmiðla að hann hafi á löggjafarþinginu árið 1997 lagt fram þingsályktunartillögu um svipað efni, sem ekki varð útrædd. Þó hafi útfærslan þá verið nokkuð önnur en nú. Það mál var svo endurflutt nokkuð breytt á 125. löggjafarþingi, árið 1999, en fékk heldur ekki framgang á Alþingi.

Í greinargerð með frumvarpinu segir að þetta verði framkvæmt þannig að að 1/40 (2,5%) hluta samanlagðrar aflahlutdeildar verði dreift á jafnan hátt til allra íbúa landsins á hverju almanaksári. Þar með verði hverjum íbúa gert heimilt að veiða hlutdeild sína í 40 ár að öðrum skilyrðum uppfylltum. Þeim 39/40 hlutum samanlagðrar aflahlutdeildar sem ekki hefur verið úthlutað í fyrstu úthlutun eftir gildistöku laganna er úthlutað á næstu 39 árum. Að gildistíma úthlutunar hvers aflahlutdeildarhluta er hlutanum úthlutað að nýju til 40 ára.

Í greinargerðinni segir ennfremur:

„Afurð þess kerfis er sú að íbúar landsins eignast tímabundna aflahlutdeild sem óumdeilt er að verður eign þeirra. Það felur þó í sér þá meginbreytingu frá gildandi fiskveiðistjórnkerfi að aflahlutdeildin verður framseljanleg að hluta eða öllu leyti, veðsetjanleg og ekki bundin við skip eða þjóðerni (þ.e. útlendingar mega kaupa þennan tímabundna kvóta). Allir pottar verða aflagðir sem og sérstök úthlutun til strandveiða. Öllum sérstökum kvöðum verður aflétt af útgerðinni og henni fengin sömu réttindi og skyldur og gilda um önnur fyrirtæki. T.d. verður auðlindagjaldi aflétt."

Samkvæmt frumvarpi Péturs, sem miðar við að taka gildi 1. júlí árið 2012, munu núverandi kvótahafar fá úthlutað aflahlutdeild. Fyrir þann dag muni Fiskistofa reikna út hversu hátt aflamark hvert skip fær, reiknað í þorskígildiskílóum miðað við úthlutun veiðiárið 2011/2012. Þannig komi fram heildaraflinn í þorskígildiskílóum og hlutdeild hvers skips í þeim afla.  ///Var að lesa allt frumvarpið og þar er margt sem hægt er að skoða en Pétur fer dolitið  langt út úr því sem við felst högum i huga ,þetta allt á 40 árum og að þeir sem nú gera vel út og hagkvæmt muni missa sitt á þessum tíma,það er of öfgafullt ef menn leggja í milljarða kostnað,en þetta með að Krókabátar mega veiða er gott ,það má auðvitað vera í þeim vel/en þetta er ekki sáttafrumvarp að mínu mati/Halli gamli


mbl.is Allir fái veiðiheimildir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045596

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband