Samtök iðnaðarins gagnrýna kolefnisskatt///við gerum að öll hugsandi fólk þetta er ofstæki og ekkert annað!!!!

amtök iðnaðarins gagnrýna kolefnisskatt Innlent | mbl.is | 24.11.2011 | 15:22 Samtök iðnaðarins gagnrýna harðlega áform stjórnvalda um að leggja á kolefnisskatt. Samtökin segja að kolefnisskattur af þessu tagi, sem á sér enga hliðstæðu í nágrannalöndum okkar, skerði verulega samkeppnishæfni íslensks iðnaðar. „Líkur á frekari uppbyggingu iðnaðar á Íslandi sem háður er notkun kolefna minnkar stórkostlega sem og geta okkar til að nýta umhverfisvænar orkuauðlindir okkar. Fjárfestingaáform margra fyrirtækja eru sett í uppnám og tilverugrunni starfandi fyrirtækja er ógnað. Í húfi eru þúsundir starfa um allt land. Kolefnisskattur brýtur gróflega í bága við fjárfestingasamninga margra fyrirtækja og verði af áformunum eru miklar líkur á að stjórnvöld séu bótaskyld. Komi til slíkra málaferla dregur það enn frekar undan trúverðugleika íslenskra stjórnvalda. Kolefnisskattur á íslensk fyrirtæki mun tæpast draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu. Starfsemin flyst einfaldlega úr landi og veldur jafnvel enn meiri útblæstri þar sem óendurnýjanlegir orkugjafar eru nýttir. Kolefnisskattur grefur undan ETS-viðskiptakerfinu um útblástursheimildir sem ætlað er að draga úr losun án þess að grafa undan samkeppnishæfni iðnaðarins. Samtök iðnaðarins hvetja íslensk stjórnvöld til að draga áform um kolefnisskatt til baka hið fyrsta til að lágmarka það tjón sem þegar er orðið,“ segir í ályktun frá Samtökum iðnaðarins./////það er allt á sömu bókina lært þarna hjá þessum umkvefissinnum,sem ekki hafa og geta ekki sannað sitt mál nema með rökleysum miklum og engin vissa fyrir hlutunum!!!! en við erum öll þessa meðvituð að það þarf aðhald en ekki þessar öfagar,talið við Indverja Kínverja og austurlönd yfirleitt,við mengum ekkert nema mynnst af öllum ekki spurning/Halli Gamli
Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.
mbl.is Samtök iðnaðarins gagnrýna kolefnisskatt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045602

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband