ESB hótar viðskiptabanni/Við ættum að þekkja þessi ríki sem verst láta,allt ESB nema, Norðmenn sem eru engu betri!"!!

ESB hótar viðskiptabanni Innlent | mbl.is | 14.5.2012 | 10:56 Makríldeilan gæti náð nýjum hæðum á næsta ári en Evrópusambandið hyggst setja á viðskiptabann á fiskinnflutning Íslendinga og Færeyja. Maria Damanaki sem fer með sjávarútvegsmál í ESB, segir að um leið og reglugerðir verði fyrir hendi muni hún gefa út viðskiptabann. Hingað til hefur framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ekki getað beitt
Makríldeilan hefur staðið í þrjú ár.
refsiaðgerðum í makríldeildunni við Íslendinga og Færeyinga þar sem reglugerðir sem heimila slíkt hefur vantað. Í viðtali við breska viðskiptablaðið The Grocer segir Damanaki að breyting sé í vændum og að viðskiptabann fylgi í kjölfarið. Damanaki segir í viðtalinu að Íslendingar og Færeyingar séu ósamvinnuþýðir og að engar vísindarannsóknir styðji ákvörðun þeirra um umfang veiðanna. Ef ekki náist samkomulag við Íslendinga og Færeyinga fljótlega verði framkvæmdastjórn Evrópusambandsins að grípa til aðgerða. Segir Damanaki að deilan verði að leysast á þessu ári. Kosið verður um reglugerðarbreytingarnar í júní. Samkvæmt reglunum fær ESB heimild til að grípa til aðgerða gegn ríkjum sem eru ósamvinnuþýð og taka ekki upp samþykktar reglur sambandsins./////Alvara málsins er okkar einnig!!! og við látum ekki kúga okkur svona,það er ekki heil brú í að vera að semja um inngöngu þarna ,við þessa pappíra sem þeir sína þarna ,og munu gera bara meira af ef við gengjum þarna inn,að vísu eru Norðmenn engu betri en hinir þarna og það ekki gott,við látum okkar ekki þarna í okkar lögsögu/Halli gamli

mbl.is ESB hótar viðskiptabanni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er regin munur á framgöngu ESB og Norðmanna vegna makríl veiða okkar íslendinga í eigin fiskveiðilögsögu.

Munurinn er sá að Norðmenn hafa ekki hótað okkur ólöglegum viðskiptaþvingunum eins og ofríkis valdaelíta ESB geir nú.

Gunnlaugur Ingvarsson (IP-tala skráð) 14.5.2012 kl. 18:50

2 identicon

það er ekki heil brú í að vera að semja um inngöngu í samtök sem setja meðlimi sína í fyrirrúm framyfir okkur. Samtök sem voga sér að sýna okkur ekki undirgefni en berjast fyrir sitt fólk. Samtök sem virðast ekki gera sér grein fyrir því hversu merkileg við erum. Nei, við göngum sko ekki í samtök sem berjast fyrir sína meðlimi.

sigkja (IP-tala skráð) 14.5.2012 kl. 20:40

3 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Verði þeim að góðu að reyna að banna okkur að veiða fisk sem gengur í okkar eigin lögsögu. Það á eftir að ganga brösuglega. Í versta falli getum við farið fram á skaðabótakröfur á hendur ESB fyrir allt ætið sem þessar ryksutgur éta innan lögsögu okkar, ef þeir ætla að banna veiðar.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 14.5.2012 kl. 21:04

4 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Þakka innlitið ykkar,það er manni í huga að svona á ekki að vera pólitík við erum öll þarna á sama báti!!,látum ekki kúga okkur/Kveðja

Haraldur Haraldsson, 14.5.2012 kl. 22:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045602

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband