Óttast gríðarlegt tap///Nei kreppunni er ekki lokið als ekki!!!!

Óttast gríðarlegt tap Viðskipti | AFP | 21.6.2012 | 22:58 Moody's dregur styrkleika fimmtán stærstu fjármálafyrirtækja heims í efa í nýjustu skýrslu sinni sem kynnt var í dag. Matsfyrirtækið lækkaði lánshMoody's hefur áhyggjur af stærstu fjármálafyrirtækjum heims. æfiseinkunn fyrirtækjanna og segir ástæðuna þá að tap blasi við hjá þeim m.a. vegna efnahagslegs óstöðugleika í Evrópu og aukins lánskostnaðarMeðal þeirra fyrirtækja sem Moody's gaf nú lægri einkunn eru risabankarnir Goldman Sachs, Citigroup, HSBC og Deutsche Bank. Moody's segir mikla hættu á því að bankarnir muni tapa gríðarlega á næstunni. Þeir séu berskjaldaðir fyrir ríkjandi efnahagslægð en ekki síst séu þeir berskjaldaðir hver gagnvart öðrum. Credit Suisse þurfti að þola mestu lækkunina en bankinn er fær nú einkunnina A1 en hafði áður einkunnina Aa1. Fjögur önnur fyrirtæki voru lækkuð um eitt stig en tíu fyrirtæki voru lækkuð um tvö stig. Það voru ekki bara bankar sem þurftu að þola lægri einkunn heldur einnig stór eignarhaldsfyrirtæki sem flest eiga stóran hlut í umræddum bönkum. Margir stærstu bankar heims hafa sogast niður með hagkerfum ríkja síðan efnahafskreppan skall á árið 2008. Skortur hefur verið á lausafé og mikil verðrýrnun eigna hefur átt sér stað sem hefur þvingað seðlabanka og ríkisstjórnir til að leggja til lausafé. Hinir 15 bankar sem Moody's lýsti af sérstökum áhyggjum, eins og kemur fram hér að ofan, eru: Bank of America, Barclays, Citigroup, Credit Suisse, Goldman Sachs, HSBC, JPMorgan Chase, Morgan Stanley, Royal Bank of Scotland, BNP Paribas, Credit Agricole, Deutsche Bank, Royal Bank of Canada, Societe Generale og UBS.////Eftir þannan lestur er maður nokkuð viss um að kreppunni er ekki nánda nærri lokið,eð hvað finnst ykkur það setur að manni kuldahroll/Halli gamli
mbl.is Óttast gríðarlegt tap
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 1045455

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband