Össur bauð John Kerry til Íslands//Hvað meinar Össur,að komat inn í samninga Banaríkana við ESB og jafnvel fleiri lönd,hvað bír að baki.vonandi gott!!

Össur baÖssur Skarphéðinsson sést hér ásamt starfsbræðrum sínum í...uð John Kerry til Íslands Innlent | mbl.is | 28.2.2013 | 12:06 Össur Skarphéðinsson sat í gærkvöldi fund utanríkisráðherra ríkja Atlantshafsbandalagsins ásamt utanríkismálastjóra ESB, með John Kerry, nýjum utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem haldinn var í Róm.

Á fundinum bauð Össur Kerry í heimsókn til Íslands og lýsti Kerry áhuga á að þiggja boðið. Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir, að í viðræðum við Kerry hafi ráðherrarnir rætt um samvinnu Íslands og Bandaríkjanna á Norðurslóðum og áhuga Kerrys á því að Bandaríkjamenn gerðust aðilar að hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Fram kom sterkur vilji hjá Kerry til að nýta reynslu og þekkingu Íslendinga á sviði fiskveiðistjórnunar og kvaðst hann vilja fá sérfræðinga og stjórnmálamenn til ráðgjafar á því sviði sem fyrst. Þá bauð Össur Kerry í heimsókn til Íslands og lýsti Kerry áhuga á að þiggja boðið, að því er fram kemur í tilkynningunni.

Á fundinum voru til umræðu öll helstu málefni sem varða samstarf Bandaríkjanna og Evrópu, jafnt á sviði öryggismála sem viðskipta.

Fram kemur í tilkynningunni, að utanríkisráðherra hafi í ræðum sínum lagt áherslu á mikilvægi þess að nýr utanríkisráðherra Bandaríkjanna beitti sér fyrir lausn á deilu Ísraels við Palestínumenn, og kvað nýjan glugga hafa opnast í því efni.

Kosningar væru frá í bæði Bandaríkjunum og Ísrael, og ný staða hefði skapast fyrir Bandaríkin til að beita sér. John Kerry hafi nú þegar átt viðræður við aðalsamningamenn Ísraela og Palestínumanna og sé ásamt Obama forseta á leið til Ísraels, þar sem skoðaðir verði möguleikar til að finna lausn sem byggir á tveggja ríkja lausninni.

„Í tilefni umræðna sem urðu um stöðuna í Sýrlandi tók utanríkisráðherra Íslands undir með nauðsyn þess að þjóðir heims styddu stjórnarandstöðuna í því að búa til nothæft stjórnkerfi sem væri fyrir hendi þegar nýir valdhafar tækju við í Sýrlandi, en undirstrikaði að ýmsar þjóðir bandalagsins gætu átt erfitt með að samþykkja beinar aðgerðir, sem ekki nytu stuðnings Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna.

Hann lagði jafnframt áherslu á fyrri samþykktir um stækkun Atlantshafsbandalagsins, og sagði nauðsynlegt að þær yrðu undirstrikaðar í verki með tillögum um stækkun þegar á næsta leiðtogafundi, enda væru nokkur ríkjanna á Balkanskaga á góðri leið með að uppfylla skilyrði um inngöngu.

Í tengslum við fundinn hélt utanríkisráðherra jafnframt áfram viðræðum við evrópska utanríkisráðherra um stöðu makrílmálsins og leitaði eftir áframhaldandi stuðningi gegn hugsanlegum viðskiptaþvingunum gegn makríl,“ segir í tilkynningunni.//////////////þetta er það sem aldey átti að slitna þessi góða samvinna þessara ríkja bandaríkjanna og Íslands og við eigum að halda þvi vel og vandað,en er þessi aðferð Össurar sönn eða bara að þykjast??ég vona ekki við þurfum þarna standa saman í samningum og fáum meir þar út ekki spurning!!enda eigum við að gera tvílhliða og samhliða samninga við aðrar þjóðir sem við skipum við og reyndar nýjar einnig,þetta er vonandi að koma og við skulum flíta því!!!!/Halli gamli


mbl.is Össur bauð John Kerry til Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 1045455

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband