Bjarni: Höftin burt á næstu mánuðum//Er nokkuð annað í stöðunni???

Bjarni: Höftin burt á næstu mánuðum Innlent | mbl | 23.4.2013 | 14:01 „Ég sé fyrir mér að hægt sé að gera þetta á næstu mánuðum,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, á fundi VÍB eignastýringarþjónustu Íslandsbanka í dag þegar hann var spurður um það hvenær hægt væri að afnema gjaldeyrishöftin.

Bjarni sagði að búið væri að kortleggja verkefnið nú þegar þrotabúin væru tilbúin að ganga til nauðsamninga og þá gæti ferlið verið fljótlegt.

Hann tók fram að fara ætti fram með ýtrustu kröfur og jafnvel beita skattlagningu á kröfuhafana.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði að ríkisvaldið hefði þau tæki sem þurfi til að knýja fram um niðurstöðu í málinu og að Evrópusambandið hefði nú þegar verið með mun róttækari aðgerðir en menn veltu fyrir sér hér á landi.

Hann sagði afnám hafta ekki eiga að taka langan tíma. Heiða Kristín Helgadóttir, stjórnarformaður Bjartrar framtíðar, taldi gjaldeyrishöftin vera það stórt málefni að það þyrfti samstöðu allra flokka við úrlausn málsins.

Hún sagði mikilvægt að þau yrðu afnumin hratt og örugglega þar sem þau hefðu mikil áhrif á atvinnulífið hér á landi.

Aukin tiltrú nauðsynleg Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, sagði að nauðsynlegt væri að byggja upp aukna tiltrú markaðarins á framtíð hagkerfisins.

Sagði hann að þó við gætum leyst einstakt vandamál eins og snjóhengjuna eða höftin, þá væri áfram hætta á miklum útflæðisþrýstingi og að skapa þyrfti stöðugleika.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, sagði flokkinn alltaf hafa talað fyrir skattlagningu á kröfuhafana í þessu sambandi, þó hægt væri að skoða fleiri valmöguleika í stöðunni.

Valdbeiting slæm Að mati Smára McCarthy, kapteins Pírata í suðurkjördæmi, er valdbeiting ekki góð lausn málsins og sagði hann að markaðurinn muni alltaf bregðast við komi til ofurskattlagningar eins og kynntar hafa verið nú í aðdraganda kosninga.

Hann sagði að erfitt gæti reynst að afnema höftin nema að til kæmi 20% gjaldfellingar krónunnar og þá þyrfti að skoða að efla samkeppnishæfni íslenskra fyrirtækja og auka aðdráttarafl fyrir erlenda fjárfestingu.////////////////Það er svo að það er komin tími á að gera þetta ,endalaus dráttur setur þetta ástand okkur í mjög slæmt ástand,við verðum að spila þetta vel og rétt,því eiginlega stendur allt og fellur með þessum skuldum sem við borgum ekki nema fella þá niður að mestu,við þurfum þarna sérfræðing alþjóðlegan sem menn taka mark á þarna hjá vogunarsjóðunum!!og það  kostar auðvitað en mundi mark borga sig,bara ráðast að hlutunum strax eftir kosningar!!!!/Halli gamli

3240_85622372532_655067532_2464490_96755_n
mbl.is Bjarni: Höftin burt á næstu mánuðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 1045454

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband