Átti ekki að sitja sem sýningagripur//Auðvitað þarf hann ekki að taka þátt í þessu frumvarpi þetta er Þingmannamál!!!!

Átti ekki a
Bjarni Benediktsson, Kristján Þór Júlíusson og Ragnheiður...Átti ekki að sitja sem sýningagripur Innlent | mbl.is | 22.10.2014 | 13:25 Bjarni Benediktsson, Kristján Þór Júlíusson og Ragnheiður... Fyrstu umræðu um frumvarp Vilhjálms Árnasonar, þingmanns Sjálfstæðisflokks, sem gengur út á að færa áfengissölu frá Vínbúðum ÁTVR og til matvöruverslana, lauk á tíunda tímanum í gærkvöldi.

Athygli vekur að atkvæðagreiðsla um framhald málsins er á dagskrá Alþingis í dag.Í 39. grein þing­skapa seg­ir að þegar fyrstu umræðu er lokið gangi frum­varpið til annarr­ar umræðu og þeirr­ar nefnd­ar er for­seti legg­ur til.

„At­kvæða skal þó leitað ef ein­hver þingmaður ósk­ar þess, svo og ef önn­ur til­laga kem­ur fram um til hvaða nefnd­ar málið fari.“

Nokkr­ir þing­menn stjórn­ar­and­stöðunn­ar hafa ein­mitt verið ósátt­ir við þá fyr­ir­ætl­an sem fram kem­ur í frum­varp­inu, að það gangi til alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd­ar.

Birgir Ármannsson og Ögmundur Jónasson ræða saman á Alþingi Birg­ir Ármanns­son og Ögmund­ur Jónas­son ræða sam­an á Alþingi mbl.is/​Styrm­ir Kári Því sé til skoðunar hvort farið verði fram á at­kvæðagreiðslu um hvort frum­varpið fari frem­ur til vel­ferðar­nefnd­ar eða efna­hags- og viðskipta­nefnd­ar.

Sam­kvæmt heim­ild­um mbl.is hef­ur ákvörðun um það ekki verið tek­in, en þing­fund­ur hefst klukk­an 15.

Söknuðu sjón­ar­miða heil­brigðisráðherra Við lok fyrstu umræðu í gær­kvöldi kvöddu tveir þing­menn Vinstri­hreyf­ing­ar­inn­ar - græns fram­boðs sér til hljóðs und­ir liðnum fund­ar­stjórn for­seta.

„Það er at­hygl­is­vert að umræðunni verði engu að síður að ljúka án þess að sá ráðherra sem fer með heil­brigðismál, með lýðheilsu­mál, sér ekki ástæðu til þess að svara fyr­ir hina op­in­beru heil­brigðis­stefnu sem hann er ábyrg­ur fyr­ir,“ sagði Stein­grím­ur J. Sig­fús­son.

Stein­grím­ur hef­ur farið mik­inn í umræðunni og óskaði hann - og fleiri - ít­rekað eft­ir þátt­töku Kristjáns Þórs Júlí­us­son­ar, heil­brigðisráðherra.

„Það eru þá ákveðin skila­boð ef ráðherra sér ekki ástæðu til þess, treyst­ir sér ekki til þess eða finnst óþægi­legt að vera sett­ur í það sam­hengi að ræða þessa hluti.

“ Sam­flokksmaður Stein­gríms, Ögmund­ur Jónas­son, fylgd­ist einnig náið með umræðunni en báðir eru þeir ein­dregið á móti því að frum­varpið nái fram að ganga.

„Ég fagnaði því síðdeg­is að heil­brigðisráðherra skyldi koma til þings, til að vera viðstadd­ur þessa umræðu eft­ir að við höfðum óskað margsinn­is eft­ir því ár­ang­urs­laust.

Þorsteinn Sæmundsson og Steingrímur J. Sigfússon. Þor­steinn Sæ­munds­son og Stein­grím­ur J. Sig­fús­son. mbl.is/​Krist­inn

En að sjálf­sögðu átti hann ekki að sitja hér sem sýn­inga­grip­ur eða ein­vörðungu að hlusta á hvað færi hér fram,“ sagði Ögmund­ur.

Ögmund­ur hef­ur í umræðunni ít­rekað vísað til sjón­ar­miða Alþjóðaheil­brigðis­stofn­un­ar­inn­ar, Land­lækn­is, Norður­landaráðs og ým­issa sam­taka er varða „rétta“ áfeng­is­stefnu.

„Þá hef­ur verið vísað til þess sem stend­ur á vefsíðu stjórn­ar­ráðsins frá 24. janú­ar síðastliðnum þar sem heil­brigðisráðherra lýs­ir sjón­ar­miðum sem ganga í ber­högg við það frum­varp sem hér var til umræðu.

Ég sakna þess að hafa ekki fengið að heyra af­stöðu heil­brigðisráðherra til þessa máls.“

Fyrsta umræða fór fram á fimm dög­um og í neðan­greindri frétt má sjá brot úr henni://////////////////////////////////Þetta mál er okkur til skammar sem sem höfum lifað tímana tvenna í þessu,að vísu man ég ekki eftir vínbanninu en Móðir mín tjáði mér mikið um það,en það vara drukkin alkonar ólifjan og bruggað mikið og illa,og men létust af afleiðingunum,etta varði í nokkur ár,en sem betur fer var þetta leift aftur,og bara eitt ríki þá á Skulagötu sem var lengi,svo komu fleiri en fá út á landi og menn urðu að fá í póstkröfum vín og keytu þá um of oft ,ekki var það betra,svo var lengi talað um um að fá bjórinn,og það tók mörg ár,allt átti að vara að fylliríi,og fólk að fara sér að voða,og loks kom hann en bara drukkið betur og meira af bjór!!!; sami söngurinn og nú þegar viti bornir menn vilja taka þetta af ríkinu,og selja í Verslunum,og er það bara okkar vilja ábyggilega mikils meirihluta fólks sem margt af því drekkur ekki ,en að þetta Alþingi ráði þessu er komið á eindaga,þetta á bara að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu og ekkert annað,fyrst Vin er leift að vissum aldri er þetta bara búðarvara,með því að afgreiða bara þá sem hafa aldur til,Ég sjálfur hefi ekki drukkið í 20 ár er mikið með þessu frumvarpi,þetta er á móti því að Ríkið sé að selja vöruna,og einstaklings frelsið númer eitt,þetta fólk sérstaklega V.G. sem drekka ekki minna en aðrir er allt á móti,skríðið fólk þetti,að mér finnst,hitt er svo að afleiðngar drykkju geta verið slæmar og það einstaklingsbundið,og í það fer peningur til lækninga,en það er og verður alltaf og þarf að aulgýsa það sérstaklega á áfengi og mikinn áróður ,einnig á móti sem er skiljanlegur,og ber að virða það vel!!!Halli gamli


mbl.is Átti ekki að sitja sem sýningagripur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 10
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045593

Annað

  • Innlit í dag: 10
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 10
  • IP-tölur í dag: 7

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband