Dregur saman með flokkunum/Þetta er ekki gott/eða hvað????


Mynd 495739Heldur dregur saman með þeim 3 flokkum, sem njóta mest fylgis kjósenda þessa dagana ef marka má könnun, sem Capacent hefur gert fyrir Morgunblaðið og Ríkisútvarpið. Fylgi Samfylkingarinnar hefur heldur minnkað miðað við kannanir sem birtar voru í gær og morað ræða þriðju raðkönnun Capacent Gallup. Samkvæmt könnuninni mælist fylgi Samfylkingar nú 28,4% en var 31,7% í samskonar könnun, sem birt var í morgun og 30,5% í könnun sem birt var í gærmorgun.

Fylgi Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs mælist 27,7% í könnuninni, sem birt var nú síðdegis. Í könnun, sem birt var í morgun mældist fylgi flokksins 27,5% og 25,9% í könnun í gær.

Fylgi Sjálfstæðisflokks mælist 23,7% í könnuninni nú en var 22,5% í könnuninni í morgun og 22,9% í könnuninni í gær.

Fylgi Framsóknarflokks mælist nú 12,7%, var 12,1% í morgun og 11,8% í gær.

Fylgi Borgarahreyfingarinnar mælist 6,2% í dag, 5% í morgun og 7% í gær.

Fylgi Frjálslynda flokksins mælist nú 1% og Lýðræðishreyfingarinnar 0,3%.

Niðurstöðurnar eru úr net- og símakönnun sem  Capacent Gallup gerði dagana 19. – 21. apríl. Úrtakið í netkönnuninni var tilviljunarúrtak úr viðhorfahópi Capacent Gallup en úrtakið í símakönnuninni  var tilviljunarúrtak úr þjóðskrá. Heildarúrtaksstærð var 2300 manns 18 ára og eldri. Svarhlutfall var 60,5%.

og fylgi Sjálfstæðisflokks eykst. //Þetta er ekki gott en vonandi að þetta breytist okkur i hag sjálfstæðismönnum,3 dagar og við verum að ná nokkurn stigum upp/annars er þetta bara ESB og ekkert annað/Halli gamli

mbl.is Dregur saman með flokkunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045596

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband