200 milljarðar á gjalddaga 2011/í viðbót við allt klabbið !!!!!

Innlent | mbl.is | 30.6.2009 | 11:16
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrímur J....Gjalddagar stórra gjaldeyrislána, sem ríkissjóður tók árin 2006 og 2008, eru árið 2011. Nemur sú skuld um 200 milljörðum króna en lánin voru á sínum tíma tekin til að styrkja gjaldeyrisforðannÞað er auðséð að menn ráða ekkert við það í endurgreiðslu, allra síst í þessu árferði, þannig að þetta þarf að endurfjármagna með einhverjum hætti,“ segir Indriði H. Þorláksson, aðstoðarmaður fjármálaráðherra.

Þá nema skuldir gömlu bankana við Seðlabanka Íslands, sem ríkissjóður yfirtók, tæpum 300 milljörðum króna að sögn Indriða.

Áætlað er að heildarskuldir ríkissjóðs verði um 130% landframleiðslu, um 1800 milljarðar, á þessu ári. Kemur þetta fram í skýrslu fjármálaráðherra um áætlun um jöfnuð í ríkisfjármálum. Ekki er reiknað með skuldbindingum vegna Icesave í þessari tölu en Indriði segir að þær muni þegar upp er staðið nema 3-400 milljörðum. Ríkissjóður byrjar ekki að greiða þá fjárhæð fyrr en árið 2016.

Fram kom hjá Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra, á opnum borgarafundi um Icesave í gærkvöldi, að skuldbindingarnar vegna Icesave væru ekki stærsta áhyggjuefnið heldur væru aðrir nærtækari hlutir hættulegri íslenska þjóðarbúinu.

Að sögn Indriða verða önnur lán og vextir af þeim, sem þarf að greiða áður en greiðslur vegna Icesave-skuldbindinganna hefjast „stærri biti að kyngja heldur en sú greiðslubyrði sem verður eftir 2016.“ 

Skýrsla fjármálaráðherra verður tekin fyrir á Alþingi í dag.///það hljóta allir að sjá að við getum aldrei borgað þetta,einfalt reiknisdæmi,enda kemur Það ekki til greina/Halli gamli


mbl.is 200 milljarðar á gjalddaga 2011
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 1045624

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband