Stöndum ekki undir skuldabyrði/segir Eva Joly í Mogga i dag!!!!!

Innlent | Morgunblaðið | 1.8.2009 | 6:29
Joly varar við því að ungt fólk flytji frá Íslandi„Þegar til kastanna kemur verður hvorki hægt að endurgreiða Alþjóðagjaldeyrissjóðnum né Bretlandi né Hollandi. Lega Íslands er hernaðarlega mikilvæg og landið ríkt af náttúruauðlindum. Ef svo fer sem horfir mun aldurssamsetning íbúanna breytast og ungt, menntað fólk flytja úr landi, skrifar Eva Joly í Morgunblaðið í dag.
Ef svo fer sem horfir mun aldurssamsetning íbúanna breytast og ungt, menntað fólk flytja úr landi. Þeir sem eftir verða munu eiga meira undir þeim sem hæst býður. Engum dylst aukinn áhugi Rússa á svæðinu,“ skrifar Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara vegna bankahrunsins, í harðorðri grein sem birt er samtímis í Morgunblaðinu, norska dagblaðinu Aftenposten, breska dagblaðinu Daily Telegraph og franska stórblaðinu Le Monde um helgina.

Joly fer hörðum orðum um viðsemjendur Íslendinga í Icesave-deilunni og aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að málinu, sem varði hagsmuni langt utan íslensku strandlengjunnar.

„Ábyrgðarlaus afstaða sumra ríkja, Evrópusambandsins og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins gagnvart hruni íslenska efnahagskerfisins sýnir að þau eru ófær um að draga lærdóm af hruni þess samfélags sem Ísland var holdgervingur fyrir – þ.e. samfélags óhefts markaðsfrelsis, einkum frjálsra fjármálamarkaða sem þessir sömu aðilar tóku þátt í að móta.“

Hún sendir Norðurlöndunum tóninn og segir þau „afreka það nú helst að bregðast ekkert við þeirri kúgun sem Ísland er beitt“, nokkuð sem dragi úr trú manna á raunverulegan vilja þeirra til að veita Íslandi stuðning

Barroso með hugann við eigin hagsmuni

Joly skýtur föstum skotum að José Manuel Barroso, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, og sakar hann um að hafa haft hugann við eigin kosningabaráttu í haust þegar hann kaus að styggja ekki helstu stuðningsmenn sína, Breta, þegar framkvæmdastjórnin hafi tekið skýra afstöðu með Bretlandi í málinu strax í nóvember.

 

„Ef Evrópa og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn snúa ekki við blaðinu kann að vera að þau vinni sannkallað afrek: dragi land þar sem þjóðartekjur á hvern íbúa hafa verið með þeim hæstu í heimi niður á stig þeirra allra fátækustu.“

Orðrétt

Strauss-Kahn, forstjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, missti hér af gullnu tækifæri til þess að láta loks verkin tala.

 

Það voru Hollendingar og Bretar sem ákváðu einhliða að upphæð innistæðutryggingarinnar ætti að vera ekki aðeins 20 þúsund evrur fyrir hvern reikning, rétt eins og kveðið var á um í evrópskum og íslenskum lögum – nokkuð sem þegar var ógerlegt fyrir íslensku ríkisstjórnina að standa við [...] heldur að upphæð 50.000 til 100.000 evrur, jafnvel hærri.

Það hversu mjög Brown hefur beitt sér gegn þessu smáríki er því ekki hægt að skýra á annan hátt en þann að hann hefur viljað ganga í augu eigin kjósenda og skattgreiðenda, fólks sem að sönnu varð fyrir miklu fjárhagstjóni og rétt er að halda til haga.///Þarna er það sem maður hefum sagt frá byrjun að við getum ekki borgað þetta,og mæltu manna heilust Eva,þetta með að Bretar og Hollendingar séu að kúga okkur er einnig rétt/þetta er ekki hægt að gera  í  viðskiptum þjóða/Halli gamli


mbl.is Stöndum ekki undir skuldabyrði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband