Tekur undir ummæli Lýðs um árásir í netheimum/já bara um nafnleynd,hún á ekki að vera!!!

Innlent | mbl.is | 26.8.2009 | 21:48
Björn Bjarnason.Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, tekur undir gagnrýni stjórnarformanns Exista, Lýðs Guðmundssonar, á nafnlausar árásir í netheimum. En Lýður gerði bloggara að umtalsefni sínu í ræðu á aðalfundi Exista í morgun. Auk þess sem hann kom inn á sama mál í viðtali við Kastljós í kvöld

Á fundinum í morgun sagðist Lýður ekki ætla að elta ólar við það samfélag hugleysingja sem stór hluti bloggheima virðist orðinn, að hans sögn. „Sóðakjaftur þeirra sem þar skýla sér undir dulnefnum á samt sinn þátt í því andrúmslofti sem daglega er kynt undir og því miður leika nokkrir oddvitar umræðunnar í netheimum þar talsvert hlutverk líka. Ég virði tjáningarfrelsi í landinu en ég fyrirlít margt það sem nafnlausir hugleysingjar senda daglega frá sér með bloggi sínu og orðbragði sem aldrei ætti að sjást eða heyrast," að sögn Lýðs Guðmundssonar.

Segir Björn á vef sínum að gagnrýni Lýðs sé bæði tímabær og réttmæt. „Þessar nafnlausu svívirðingar eru sama eðlis og árásir skemmdarvarga á eignir manna í skjóli myrkurs. Þeirra, sem skemma eignir er leitað, hinir, sem skemma mannorð manna, ærast séu þeir gagnrýndir," skrifar Björn á vef sinn í kvöld///Undir þetta hljótum við bloggarar að taka nafnleynd á ekki við þar,menn verða að skrifa undir nafni sem gyldir,annað ekki/það að svifirða aðra er kannski ekki gott en það er þá gott ef menn gera það og standa við það,annars ekki/Halli gamli


mbl.is Tekur undir ummæli Lýðs um árásir í netheimum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband