Hegðun Breta og Hollendinga ekki sæmandi/það er þá mikið satt!!!!!!

Innlent | mbl.is | 1.9.2009 | 7:11
 Hegðun Hollendinga og Breta gagnvart Íslandi í Icesave-málinu er ekki sæmandi ríkjasambandi sem leggur áherslu á samstöðu, segir blaðamaður þýska blaðsins Die Zeit í grein á vefsíðu blaðs

Bomsdorf segir, að Bretar og Hollendingar hafi neytt Íslendinga til að taka milljarða evra að láni en það fé fari hins vegar aldrei til Íslands heldur eigi að nota það til að bæta tap sparifjáreigenda í löndunum tveimur, sem hafi sett peningana sína inn á íslenska hávaxtareikninginn Icesave. 

Í sjálfu sér sé ekkert að segja við slíkum lánum enda ríki samningsfrelsi á alþjóðavettvangi. En í þessu tilfelli hafi ekki verið um neitt frelsi að ræða. Þótt Alþingi Íslendinga hafi á föstudag samþykkt að ábyrgjast lánið hafi það ekki annars kost.  

Ísland hafi skort hæfni, tíma og kraft í samningaviðræðum um lánin og það sé enn óljóst hvort ríkjum á borð við Ísland séu í raun skylt að ábyrgjast tapaðan sparnað. Evrópureglur á þessu sviði hafi ekki verið samdar fyrir sérstök tilfelli eins og það íslenska.  

Engu að síður krefjist Bretar og Hollendingar að Íslendingar borgi brúsann og hafi beitt til þess ýmsum þvingunum, svo sem breskum hryðjuverkalögum og áhrifum sínum hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.  Nú hafi löndin tvö náð markmiðum sínum en Íslendingar hafi litla möguleika á að greiða skuldina að fullu. 

Bomsdorf segir að ekki sé hægt að kenna Íslendingum einum um það hvernig fór fyrir íslensku bönkunum. Hvetur blaðamaðurinn til þess, að Evrópubúar hjálpi Íslandi við að koma á pólitískum stöðugleika að nýju og endurreisa efnahag landsins með því að dreifa skuldunum. Bretar, Hollendingar og Íslendingar ættu að setjast að samningaborðinu að nýju og gera nýja lánasamninga frá grunniins og vísar þar til Evrópusambandsins/Þetta er og verður mjög svo umdeilanlegt ,og við eigum ekki að sætta okkur við þetta/við getur aldrei borgað þetta/Halli gamli


mbl.is Hegðun Breta og Hollendinga ekki sæmandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045595

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband