Deilt um kaupauka bankastjóra/okkur fer að koma þetta við ef erlendir eiga þá her!!!

Viðskipti | mbl.is | 5.9.2009 | 9:54
 Timothy Geithner fjármálaráðherra Bandaríkjanna á G20 fundinum í gær Ágreiningur hefur komið upp meðal fjármálaráðherra helstu iðnríkja heims um hvernig stemma eigi stigu við ofurlaunum stjórnenda banka. Málið verður rætt á fundi fjármálaráðherra G20-ríkjanna, helstu iðnríkja heims og stórra þróunarlanda, í London í dag.

Christine Lagarde, fjármálaráðherra Frakklands, segir að of háir kaupaukar hafi stuðlað að fjármálakreppunni í heiminum og hefur lofað herferð gegn ofurlaunum bankastjórnenda, m.a. með lögbundnum takmörkunum á kaupauka.

Alistair Darling, fjármálaráðherra Bretlands, leggst gegn þeirri tillögu og segir hana óframkvæmanlega. Hann vill að þess í stað verði settar reglur sem tengi laun stjórnendanna við langtímaárangur þeirra. Að sögn BBC hyggst Darling leggja til að kaupaukarnir verði greiddir á fimm árum og megnið á síðustu tveimur árum tímabilsins.

Talið er að Tim Geithner, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, sé einnig andvígur tillögu Lagarde.

Markmiðið með fundi fjármálaráðherranna er að undirbúa leiðtogafund G20-ríkjanna í Pittsburgh í Bandaríkjunum 24.-25. þessa mánaðar.///Okkur fer að koma þetta við er bankarnir okkar fara i eigu erlendar aðila sem allt bendir til/þessari ofurlaunatakantik er ekki oft á/ má ekki að koma aftur bónus á bónusar ofan búnir að fá nóg af slíku/Halli gamli


mbl.is Deilt um kaupauka bankastjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 48
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband