Lausn í Icesave í sjónmáli/segir þökkli meirihlutinn!!!!!

Lausn í Icesave í sjónmáli
Innlent | mbl.is | 22.9.2009 | 16:35
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, ræðir við...„Fulltrúar þjóðanna eru að tala saman og ég er að vona að við getum fengið einhverja niðurstöðu í málið fyrir lok þessarar viku,“ sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra aðspurð um stöðu Icesave-málsins á stuttum blaðamannafundi á Hilton hótel Nordica fyrir stundu

Innt eftir því hvers konar niðurstöðu hún vænti segir Jóhanna auðvitað unnið í samræmi við samþykktir Alþingis. Mikilvægt sé að niðurstaðan sé í samræmi við vilja þingsins.  

Jóhanna segir ekki hafa „hvarflað að neinum“ að setja bráðabirgðalög um Icesave en hún vísar jafnframt til föðurhúsanna orðrómi um að hún muni láta af embætti forsætisráðherra um áramótin. Hún hyggist sitja út kjörtímabilið eins og hún hafi boðað.

Hún útilokar hins vegar ekki að stokkað verði upp í ríkisstjórninni. Ljóst sé að bregða þurfi niðurskurðarhnífnum á loft og horfir ráðherrann þar meðal annars til stofnunar atvinnuvegaáðuneytis.  

Meðal þess sem verið sé að skoða sé hvort færa megi íbúðalán frá bönkunum til Íbúðalánasjóðs en aðspurð um tímasetningar í þeim efnum sagði hún erfitt að segja til um þær á þessari stundu.

„Það hefur þá kosti að þá er frekar hægt að fara í samræmdar aðgerðir fyrir alla aðila, hvort sem um er að ræða lán í bönkunum eða Íbúðalánasjóði,“ sagði Jóhanna.

Gripið til aðgerða fyrir áramót

Hins vegar væri alveg ljóst að gripið yrði til aðgerða til handa heimilunum fyrir áramót. Á því væri enginn vafi.

Forsætisráðherra boðar jafnframt frekari skattahækkanir og auknar álögur til að stoppa í það mikla gat sem hrunið hefur skilið eftir í fjárlögunum.

„Það er náttúrulega alveg ljóst að við þurfum að fara í verulegar breytingar að því er varðar fjárlögin sem við þurfum að ná bæði með niðurskurði og útgjöldum og tekjubreytingum. En hvernig skattahækkanir eða breytingar það verða, það liggur ekki enn þá fyrir. Við þurfum að fara í verulegan niðurskurð og hluta af því þurfum við að ná með skattahækkunum.“

Hvað snertir aðgerðir til handa heimilunum segir Jóhanna þær verða ræddar á þingsflokksfundi sem nú stendur yfir á Nordica.///Um hvað er varið að semja spyr maður bara?????,það sem skeði á Hilton í dag er leynd er það ekki ,eins og allt sem verið er að bræða sem við sjáum þarna/Halli gamli


mbl.is Lausn í Icesave í sjónmáli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 42
  • Frá upphafi: 1045618

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband