Sendiráð upp á 1,5 milljarða/Þarna má aldeilis spara!!!!!!

Sendiráð upp á 1,5 milljarða
Innlent | Morgunblaðið | 23.9.2009 | 5:30
Frá Tókýó.Kostnaður við stofnun og rekstur sendiráðs Íslands í Tókýó í Japan hefur numið tæplega 1,5 milljörðum króna miðað við verðlag hvers árs. Stofnkostnaður nam í fjárlögum 2000-2001 alls 815 m.kr.Urðar Gunnarsdóttur, fjölmiðlafulltrúa utanríkisráðuneytisins. Í fjárlögum 2001-2009 var sendiráðinu ætlað að fá í rekstrarkostnað 662,9 m.kr, eða um 73,7 m.kr. á ári að jafnaði. Kostnaður er reiknaður skv. fjárlögum á verðlagi hvers árs og uppreiknaður kostnaður yrði talsvert hærri.

Aðspurð hvort rekstur sendiráðs í Japan skili Íslandi nægjanlega miklu til að forsvaranlegt sé að reka það segir Urður að hlutverk utanríkisþjónustunnar hafi aldrei verið mikilvægara en nú, þegar leita þarf allra leiða til að viðhalda og bæta samskipti Íslands við erlend ríki og búa í haginn fyrir íslenska aðila, fyrirtæki og aðra sem hyggi á viðskipti erlendis. „Þetta er langtímaverkefni utanríkisþjónustunnar, og þá ekki síst sendiráða í viðkomandi löndum,“ segir Urður og bendir á að Japan sé annað stærsta hagkerfi í heimi og í 8. sæti yfir helstu viðskiptalönd Íslands þar sem vöruskiptajöfnuðurinn er hagstæður Íslandi.

„Engu að síður þarf utanríkisráðuneytið, í ljósi efnahagsástandsins, að skera rekstrarútgjöld verulega niður og hagræða eins og kostur er,“ segir Urður en m.a. hefur sendiskrifstofum verið fækkað.///þetta hefur verið sagt i mörg ár það i Sendiráðum og utanríkisþjónustunni mætti spara milljarð,en ekkert gert i þessu bara bruðlað,við getum svo sem verið með frændum okkar á mörgum stöðum i heiminun ef um semst,oft var nauðsyn en núna er verður að gera eitthvað/Halli gamli


mbl.is Sendiráð upp á 1,5 milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Heimir Hannesson

Ef að Ísland á einhverntimann að grafa sig uppúr þessu ástandi, þá þarf að efla utanríkisþjónustuna til muna. Allar aðrar þjóðir v-evrópu, sama hversu litlar þær eru, eru með öfluga utanríkisþjónustu til að standa vörð um hagsmuni þeirra á erlendri grundu.

Ég segi, að vegna þess hve utn-þjónustan er full af gömlum útbrunnum pólitíkusum og veik vegna endalausra fjárskurða og sparnaðar, var hún ekki til þess fallinn að vernda hagsmuni Íslands í tengslum við IceSave ...

Svo að endilega! Leggjum þetta bara niður...

Ég þakka guði að besservissar eins og þú ráðir ekki neinu hérna!

Heimir Hannesson, 23.9.2009 kl. 10:28

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Trúaður maður þakkar Guði fyrir að besservissar eins og Halli gamli stjórni ekki hér!!!!Það er mikil þversögn í þessu öllu hjá þér,þessi utanríkisþjónusta hefur  bókstaflega ekkert gert til að réttalæta okkur útávið,það væri betra að hafa bara sendinefnd manna sem gengi á millum landa vel mannaða og þeir sæju um þessi mál okkar,þetta er nóg til að úrvals fólki,sem er hreyfanlegt,sparnaður þarna liggur á borðinu,en ekki þar að að koma niður á kynningu okkar,við eigum fullt af færu fólki til þessa/Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 23.9.2009 kl. 10:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 1045453

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband