Jóhanna gagnrýnir Brown/það er bara ekki nóg !!!!!!

Jóhanna gagnrýnir Brown
Innlent | mbl.is | 6.10.2009 | 6:52

Jóhanna Sigurðardóttir Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, gagnrýnir Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, harðlega fyrir setningu hryðjuverkalaganna fyrir ári síðan í viðtali við blaðið Financial Times í dag. Hún segir í viðtalinu að sú seinkun sem hefur orðið á greiðslum frá AGS sé óásættanleg

Kemur fram í FT að ákvörðun Breta að setja hryðjuverkalögin til þess að fyrsta eignir Íslendinga hafi aukið kreppuna á Íslandi og eyðilegt sambandið á milli tveggja ríkja innan Atlantshafsbandalagsins. 

„Það að stimpla vin og bandamann til langs tíma sem hryðjuverkamann er gjörningur sem við munum seint gleyma," segir Jóhanna við FT. „Það særir."

Fjallað er um deilur Íslendinga við Breta og Hollendinga út af Icesave reikningum Landsbankans í greininni en um innistæður fyrir um fjóra milljarða evra hafi horfið. 

Segir Jóhanna að það sé ósanngjarnt að bæði AGS og norrænu ríkin hafi gert það að skilyrði að leysa þurfi Icesave deiluna áður en Íslendingar fái lán. Hins vegar vonist hún til þess að endurskoðun lánsins geti hafist hjá AGS á næstu vikum.

Segir hún að bresk og hollensk yfirvöld geti ekki þvegið hendur sínar af ábyrgð eigin fjármálaeftirlita vegna íslensku bankanna sem störfuðu í löndunum tveimur.  

Hún segir að þar stangist á gerðir Breta og meginreglu Brown sjálfs. Með því að láta Íslendinga greiða fyrir mistök íslensks einkabanka. „Breski forsætisráðherrann hefur sagt að almenningur eigi ekki að líða fyrir rangar gjörðir bankanna en að  bankarnir eigi að umbuna almenningi. Greinilega telur hann ekki íslenskan almenning þar með," segir Jóhanna.

Hún segir að Íslendingar beri sjálfir einhverja ábyrgð hruninu en helsta skýringin sé óhaminn kapitalismi og græðgi. Auk mikilmennskubrjálæðis og krosseignatengsla fárra leikmanna.

Jóhanna segir í viðtalinu að lausafjárkreppan hafi orðið til þess að íslensku bankarnir hrundu en stjórnmálamenn og eftirlitsstofnanir á Íslandi hefðu átt að krefjast þess að bankarnir drægju saman seglin///það er margt til i þessu hjá Jóhönnu,en það þarf að fylgja þessu eftir ekki bara segja hlutina ,gera meir og mótmæla á erlendum vetfangi og vel það/við erum alltof lin i þessu verum að sina hörku,þetta er vonlaust mál hjá þeim sem  ekkert sjá nema að ganga inn i ESB ,þar lyggur hundurinn grafin ,ekki má heldur stykkja AGS og einnig þar er ekki gott/ef Jóhanna  væri að hugsa fyrst og fremst um Ísland er þetta ekki leiðin/Halli gamli


mbl.is Jóhanna gagnrýnir Brown
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hulda Haraldsdóttir

 þetta var svo sannarlega löngu tímabært  en betur má ef duga skal,  en hún fær þó eitt lítið prik fyrir þetta  

Hulda Haraldsdóttir, 6.10.2009 kl. 12:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 18
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband