Skulda milljarð út á jarðakaup/bruðlið heldur áfram í bönkunum og lánum!!!!

Skulda milljarð út á jarðakaup
Innlent | Morgunblaðið | 7.11.2009 | 5:30

Langárfoss við Langá er ein verðmætasta laxveiðijörð... Félag í eigu sex fyrrverandi stjórnenda Kaupþings, sem keypti á árunum 2002-2005 fjórar jarðir á Mýrum fyrir um 400 milljónir, skuldar í dag rúmlega einn milljarð króna.

Lánin voru upphaflega tekin hjá SPRON og Sparisjóði Mýrasýslu en eru núna komin inn í Kaupþing. Allt bendir til að bankinn verði fyrir tjóni upp á hundruð milljóna króna vegna þessara viðskipta.

Það er félagið Hvítsstaðir sem á jarðirnar fjórar sem allar eru við Langá.Skráðir eigendur Hvítsstaða eru Hreiðar Már Sigurðsson, Ingólfur Helgason, Magnús Guðmundsson, Sigurður Einarsson, Steingrímur Páll Kárason og Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, en þeir eru allir fyrrverandi stjórnendur hjá Kaupþingi.

Sexmenningarnir lögðu fram 100 þúsund krónur hver í hlutafé og fengu lán til jarðakaupa upp á rúmlega 400 milljónir, en kaupin voru alfarið fjármögnuð með lánum. Lánin eru í japönskum jenum. Lánin stóðu í tæplega 430 milljónum króna í árslok 2007, en vegna gengisfalls krónunnar standa þau nú í rúmlega einum milljarði.////þetta er ennþá á fullu þessi vitlausa og bruðl i lánum bankana ,þetta e verður að fara að takka fastar á þessum og lánum ,menn sæta ábyrgð.svo gengur þetta ekki lengur,alla daga að kom eitthvað nýtt sem er Krýminalt og engin tekin til gæslu ,við verðum að vera harðar i þarna mikið harðari,svo linkynt gengur ekki lengur/Halli gamli


mbl.is Skulda milljarð út á jarðakaup
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynjólfur Árnason

Hvað ætli þessir skuldi?

Lífsval ehf.

Brynjólfur Árnason, 7.11.2009 kl. 09:16

2 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Almenningur er að springa enginn ennþá dæmdur ekkert náð frá þeim rotturnar í felum flestir í útlöndum lifa í velllystingum á peningunum sem þeir stálu af þjóðinni ef stjórnvöld fara ekki að gera eitthvað af viti gegn spillingunni þá má guð hjálpa íslandi.

Sigurður Haraldsson, 7.11.2009 kl. 20:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 5
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 52
  • Frá upphafi: 1045602

Annað

  • Innlit í dag: 5
  • Innlit sl. viku: 51
  • Gestir í dag: 5
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband