47% skattur á launatekjur?/nægja ekki 45% ????????

47% skattur á launatekjur?
Innlent | mbl.is | 9.11.2009 | 18:03

 Verið er að ræða hugmyndir í stjórnkerfinu um þriggja þrepa skatta á launatekjur. Fram kom í fréttum Ríkisútvarpsins, að gert sé ráð fyrir því að skattur á lægstu tekjur lækki lítillega en að tekjuskattur á 500 þúsund króna tekjur og hærri verði rúmlega 47% en hann er rúmlega 37% nú.

Breytingarnar eiga að skila ríkissjóði tugi milljarða í auknar tekjur á næsta ári. Að sögn RÚV er rætt um að gera miklar breytingar á virðisaukaskattinum, m.a. að almennt hlutfall hans hækki úr 24,5% í 25%. Virðisaukaskattur á almenn matvæli verði óbreyttur 7%, en vsk. á bækur, geisladiska og hótelgistingu tvöfaldist og verði 14%. Vsk. á kex, gosdrykki og safa hækki úr 7% í 25%, að sögn fréttastofu Ríkisútvarpsins.

Þá sagði útvarpið að fallið hafi verið að hluta frá boðuðum orku-, umhverfis- og auðlindasköttum. Enn sé þó gert ráð fyrir 20 aura skatti á hverja kílówattstund. Með því mun skattheimta af stóriðju aukast um 2,7 milljarða. Einnig er hugmynd um kolefnisskatt sem skili ríkinu rúmum fimm milljörðum á næsta ári. Hugmynd er um að hækka tryggingagjald um eitt prósentustig. ////svona er þetta sem þeir áætla að hafa af okkur öllum engin veður undanþegin!!!þessi þrískipting er i sjálfu sér ekkert slæm,búið að vera í USA í mörg ár,svo aftur með hvernig þessu er skipt eru margar skoðanir hæfilegt hefði verið að hafa 25% 35% og 45% en þeir eru með lægstu verða með 36% hinir 40% svo og 47 % þetta þykir manni einum of,og til dæmis gerðu Svíar þetta og mystu alla tekjuhæðstu burt!!!svo  segir fólk að þetta sé tekjuletjandi fyrir fólk og það er satt að hluta!!!en svo hringlandin með virðisauka þar er nóg að hafa 2 þrep og vel það bara mat 7% og hitt allt með 25% svo og stoppa þeir sennilega ekki þarna og vilja setja á Eignarskatta,þeir voru feldir niður sem betur fer en talað um að setja þá á aftur og þá á stóreignir ekki venjulegar íbúðir/þetta er i skoðun og sennilega margt fleira,en getum við venjulegt fólk borgað herri skatta ,það er maður ekki viss um þá svo við vildum það!!!/þetta á eftir að fella stjórnina sem situr nú/Halli gamli


mbl.is 47% skattur á launatekjur?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Ó já ekkert búið að gera til aðstoðar heimilum í landinu bara reynt að bjarga fjármagnseinendum með því að endurreisa vonlausa banka. Engin verið látin svara til saka hvað eigum við að bíða lengi þolinmæðin er á þrotum.

Sigurður Haraldsson, 11.11.2009 kl. 01:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 1
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 1045452

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband