Að hneigja sig eða hneigja sig ekki/Bandaríkjaforseti gerði rétt!!!!!

Að hneigja sig eða hneigja sig ekki
Erlent | AFP | 16.11.2009 | 13:12

Barack Obama hneygir sig djúpt fyrir Akihito Japanskeisara.Myndir, sem sýna Barack Obama, Bandaríkjaforseta hneigja sig djúpt fyrir Akihito Japansforseta fyrir helgina, hafa vakið talsvert uppnám meðal gagnrýnenda forsetans heimafyrir. Segja þeir að forsetinn

Obama er nú í ferð um Asíu en hann kom til Japans á föstudag. Hneiging Obama fyrir Japanskeisara var aðalumræðuefnið í mörgum spjallþáttum í bandarískum sjónvarpsstöðum í gær og á bloggsíðum netsins og veltu menn því fyrir sér hvort forsetinn hefði orðið sér og bandarísku þjóðinni í heild til minnkunar.  

„Ég skil ekki hvers vegna Obama forseta fannst þetta vera viðeigandi," sagði William Kristol í þætti í sjónvarpsstöðinni Fox í gærkvöldi. „Kannski hélt forsetinn að þetta myndi mælast vel fyrir í Japan. En það er ekki við hæfi að bandarískur forseti hneigi sig fyrir erlendum þjóðhöfðingja," sagði Kristol og bætti við að þetta endurspeglaði hvað Bandaríkin væru orðin veikburða undir stjórn Obama. 

Annar íhaldsmaður, Bill Bennett, sagði í þættinum State of the Union á CNN: „Þetta er ljótt, ég vil ekki horfa á það. Við lútum ekki keisurum eða kóngum."

Í sumum þáttum var einnig sýnd mynd af Dick Cheney, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna, sem heilsaði Japanskeisara árið 2007 með handabandi en hneigði sig ekki.  Einnig var vísað til þess, að Obama hefði hneigt sig fyrir Abdullah konungi Sádi-Arabíu á fundi G20 ríkjaanna í apríl.

Umfjöllunin um hneigingu Obamas var almennt neikvæð vestanhafs en nokkrir stjórnmálaskýrendur tóku þó upp hanskann fyrir forsetann, þar á meðal Donna Brazile.

„Mér finnst þetta lýsa velvilja," sagði hún við CNN og bætti við að hneigingunni virtist ætlað að sýna fram á velvilja tveggja þjóða sem virða hvor aðra.

Þá sagði ónafngreindur embættismaður, að Obama hefði aðeins verið að fylgja siðareglum.eigi ekki að beygja sig fyrir erlendum þjóðhöfðingjum.///sammála því að Bandaríkjaforseti hafi gert rétt,þetta er virðing við gestgjafann, Keisari er æðstur i Japan,en Forseti Bandaríkjanna bara í Bandaríkjunum,svo þetta et alveg án þess að stykkja neinn nema stórmenskuna ,sem blundar i alltof mörgum /Halli gamli


mbl.is Að hneigja sig eða hneigja sig ekki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 1045454

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband