Svavar neitaði að mæta á fundinn///er hann ekki skyldugur að mæta,hvað er í gangi þarna!!!!

Svavar neitaði að mæta á fundinn
Innlent | mbl.is | 30.12.2009 | 10:37

Embættismenn bíða eftir að ganga á fund fjárlaganefndar í morgun.Svavar Gestsson, formaður samninganefndar um Icesave, neitaði að koma fyrir fund fjárlaganefndar, en minnihluti nefndarinnar óskaði eftir því að hann kæmi fyrir nefndina. Kristján Þór Júlíusson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, segir að þetta hafi komið fram á nefndarfundi í morgun.

Kristján Þór sagði þegar hlé var gert á fundi fjárlaganefndar í morgun að Svavar hefði sent yfirlýsingu til nefndarinnar þar sem kæmi fram að hann væri ekki sammála frásögn bresku lögmannsstofunnar Mishcon de Reya á því sem gerðist skömmu áður en drög að Icesave-samningunum voru kynnt fyrir utanríkisráðherra sl. vor.

Kristján Þór  sagði að Svavar svaraði í engu þeim atriðum sem þingmenn stjórnarandstöðunnar vildu spyrja um. Raunar hefðu þingmennirnir ekki fengið tækifæri til að leggja neinar spurningar fyrir Svavar.

Bréf Svavars er stutt. Þar segir: „Í bréfi lögmannsstofunnar Mishcon de Reya er fullyrt að ég hafi lagt svo fyrir sem formaður samninganefndarinnar að ekki mætti sýna utanríkisráðherra Össuri Skarphéðinssyni hluta af kynningu lögmannsstofunnar í Icesave málinu þar sem málið væri of viðkvæmt. Einhverjir hafa kosið að skilja þetta svo að ég hafi ekki treyst utanríkisráðherra. Ekkert er fjarri sannleikanum og bið ég fjárlaganefnd í allri vinsemd að hugleiða hvaða markmiðum ég hefði náð með því að leyna mikilvægum gögnum fyrir utanríkisráðherra. Ég kannast sem sé ekkert við þá lýsingu á málinu sem fram kemur í bréfi Mishcon de Reya 29.12. 2009. Hins vegar lagði lögmannsstofan sjálf mikla áherslu á að málið væri viðkvæmt.“

Samkvæmt upplýsingum mbl.is vill minnihlutinn í fjárlaganefnd einnig fá upplýsingar frá Mishcon de Reya um tölvusamskipti lögmannsstofunnar við íslensku samninganefndina og fjármálaráðuneytið fyrr á þessu ári. Á það hefur stjórnarmeirihlutinn í nefndinni ekki fallist.

Tveir af þeim sem sátu í samninganefnd Íslands, sem sömdu við Breta og Hollendinga um Icesave-samninginn, komu fyrir fjárlaganefnd í morgun. Þetta eru Einar Gunnarsson, ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu, Áslaug Árnadóttir, yfirmaður Tryggingasjóðs fjárfesta og innstæðueiganda og Páll Þórhallsson lögfræðingur í forsætisráðuneytinu voru kölluð fyrir fund fjárlaganefndar í morgun. Áslaug og Páll sátu í nefndinni sem samdi við Breta og Hollendinga um Icesave.

Ólöf Nordal, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði að Áslaug og Páll hefðu ekki getað varpað ljósi á atburðarrásina sem um er deilt. Ólöf sagði ljóst að einungis Svavar sjálfur gæti skýrt málið með því að svara spurningum nefndarmanna.///þarna er komin hljóð i strokkinn sem við viljum ekki að gerist hvað hefur sendiherrana til að neita að mæta,það er skitaligt að þessu öllu og þetta verður að kryfja til grunna,ekkert annað i stöðunni er að maður mæti og hann getur ekki neitað,eru kommarnir að taka völdin alveg eða hvað,engum að hliða þurfa þessa ekki/,þetta má ekki gefa eftir/Halli gamli


mbl.is Svavar neitaði að mæta á fundinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 33
  • Frá upphafi: 1045627

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 33
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband