Joly harðorð í garð Hollendinga//"sannleikanum verður hver sárreiðastur,segir máltækið!!!

Joly harðorð í garð Hollendinga
Innlent | mbl.is | 7.1.2010 | 19:10

Eva Joly, ráðgjafi sérstaks saksóknara vegna bankahrunsinsEva Joly, ráðgjafi embættis sérstaks saksóknara, segir í viðtali við hollenska blaðið Nrc Handelsblad að hollenskir eftirlitsaðilar hafi verið kærulausir þegar að kom að því að kanna hvort eftirlitsaðilar á Íslandi væru að vinna vinnuna sína varðandi Icesave. Sem þeir gerðu ekki að sögn Joly.
Hún segir að Hollendingar hafi reynt að fela mistök sín með því að vísa til lagalegrar skyldu Íslendinga hvað varðar Icesave-reikningana og bætir við að þetta sé hneyksli.

Fólksflóttinn hafinn

Joly segir að ef Hollendingar komi ekki á móts við Íslendinga verði engir eftir á eyjunni aðrar en sjómenn og fólk sem kemur að fiskvinnslu. Á sama tíma verði Hollendingar ekki búnir að fá peningana sína aftur.

 „Fólksflóttinn er byrjaður. 8.000 vel menntaðir einstaklingar hafa þegar yfirgefið eyjuna og fleiri munu fylgja í kjölfarið. Það er ekki okkar hagur að ganga nærri Íslandi. Landið á gjöfular náttúruauðlindir og staðsetning þess mikilvæg. Við ættum ekki að kúga þá heldur semja við þá, á mun betri og þroskaðri hátt heldur en hingað til," segir Joly í viðtalinu.

Þjófnaður á almannafé

Hún segir að bankarnir sem nánast stefndu Íslandi í þrot hafi allir verið í einkaeigu. Meirihluti íslensku þjóðarinnar hafi ekki komið þar nærri. Hins vegar séu skuldir bankanna nú orðnar að skuldum ríkisins og hafi því áhrif á alla. „Þetta er þjófnaður á almannafé," bætir Joly við. 

Sýndu Íslendingum hroka

Hún segir að bæði Hollendingar og Bretar hafi sýnt Íslendingum hroka og ljóst sé að Íslendingar geti aldrei greitt þær fjárhæðir sem þeir eru krafðir um vegna Icesave.  Það sem Icesave hafi gert hafi verið rangt en Hollendingar og Bretar eigi einnig sök að máli. Fjármálaeftirlit beggja landanna hafi brugðist og vísað ábyrgðinni yfir á eftirlitsaðila á Íslandi þó ljóst hafi verið að ekki væri möguleiki á því að örfáar manneskjur í Reykjavík gætu fylgst með því sem gerðist í Amsterdam og Lundúnum.////Joly lætur þá Hollendinga hafa það óþvegið og Bretana einnig,þetta er mikið til i þessu ,þeir geta sjálfir séð að ef við eigum að gjalda þessa verðum við að ger borgað,og það þarf rekstur og framleiðni til þessa en ekki tap og fólksflotta,hún hefur lög að mæla og við þyrftum að nota hana i samningum fyrir okkur,ef hun vill hjálpa og ef af verður að menn nái áttum/Halli gamli


mbl.is Joly harðorð í garð Hollendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Tókstu eftir því að Eva sagði líka: Íslendingar eiga náttúrulegar auðlindir sem við gætum haft gagn af (Evópusambandið !) og svo er landið hernaðarlega þýðingarmikið vegna staðsetningar !

Bara svo við skiljum Evópumenn betur, þeir vilja okkur inn fyrir sig !

Örn Johnson ´43 (IP-tala skráð) 7.1.2010 kl. 21:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 32
  • Frá upphafi: 1045626

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 32
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband