Mál mótmælenda þingfest/af hverju dregist á annað ár??á þetta að vera viðvörum,vegna skírslu um rannsókn á kreppunni!!!!

Mál mótmælenda þingfest
Innlent | mbl | 21.1.2010 | 10:22

Á milli tuttugu og þrjátíu mótmælendur brutu sér leið inn í...Ákæru ríkissaksóknara gegn níu mótmælendum sem brutust sér leið inn í Alþingishúsið 8. desember 2008 var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Enginn ákærðu tók afstöðu til ákærunnar, en það munu þau gera þegar málið verður tekið fyrir næst, 9. febrúar nk.
Ekki voru allir sakborninga mættir til þingfestingar. Einn þeirra er staddur í útlöndum og annar úti á landi. Þeir sem mættir voru reyndu nokkrir að fela andlit sín fyrir vökulu auga fjölmiðla á meðan öðrum stóð á sama. „Það þekkja þig allir,“ sagði einn og hvatti félaga sinn til að taka niður trefil sem hann hafði vafið utan um andlitið.

Þegar inn í réttarsalinn var komið þurftu þó allir að taka höfuðföt sín og andlitsgrímur niður. Bekkurinn var þéttsetinn, hvort sem er sakborningum, félögum þeirra, fjölmiðlafólki og öðrum áhorfendum. Þinghald var stutt, ekki nema um tíu mínútur. Arngrímur Ísberg, dómari málsins, spurði hvern og einn sakborning hvort hann vildi taka afstöðu til ákærunnar. Allir neituðu þeir.

Mál án hliðstæðu

í frétt Morgunblaðsins frá 9. desember 2008 var sagt frá atburðunum í Alþingishúsinu. Þar sagði: „Þingfundur hófst í gær eins og hver annar fundur. Siv Friðleifsdóttir steig í pontu í þeim tilgangi að beina fyrirspurn til fjármálaráðherra en komst ekki langt því ofan af þingpöllum mátti heyra hrópað: „Drullið ykkur út!“ Karl og kona voru fjarlægð af pöllunum en héldu áfram að hrópa, m.a. að ríkisstjórnin ætti að víkja.“

Á milli tuttugu og þrjátíu manns komust inn í Alþingishúsið og ruddu þingvörðum úr vegi. Einn þingvörður þurfti að leita á slysavarðstofu eftir að hafa verið hrint á ofn þegar ruðst var upp stigaganginn og tveir lögreglumenn þurftu aðhlynningu þar sem þeir höfðu verið bitnir í hendur og bak.

Þingmönnum og starfsfólki Alþingis var mjög brugðið og á atvikið sér enga hliðstæðu. Þótt komið hafi til óeirða fyrir utan þinghúsið hafði aldrei verið ruðst inn í það með þessum hætti.

Skaðabótakröfur og viðurlög þung

Þingvörðurinn sem hrint var á ofninn tognaði á hálsi og hrygg. Hann krefst tæplega 600 þúsund króna í skaðabætur vegna árásarinnar. Einnig slösuðust lögreglumenn og hlaut einn af þeim 8% örorku vegna áverka sinna.

Mótmælendurnir eru ákærðir fyrir brot gegn 100. grein almennra hegningarlaga. Hún hljóðar svo: „Hver, sem ræðst á Alþingi, svo að því eða sjálfræði þess er hætta búin, lætur boð út ganga, sem að því lýtur, eða hlýðir slíku boði, skal sæta fangelsi ekki skemur en 1 ár, og getur refsingin orðið ævilangt fangelsi, ef sakir eru mjög miklar.“

Verði mótmælendur sakfelldir er því ljóst að þeirra bíður þung refsing. ////ekki er maður að mæla þessu bót alls ekki !!! það er lög í landinu og þau ber að virða við mótmæli,en það skuli vera komið á annað ár þegar þetta er byrt er skrítið og tímasetningin einnig ,það er og liggur i þessu smá hótun að við skulum ekki setja af stað önnur mótmæli þegar þessi skýrsla um kreppuna og þeirra sem  þar eiga sök er birt verði allt vitlaust ef ekki er tekið reit málum ,með þar sem  grunaðir eru og  sekir og svo framvegis,það var á Lögregluvarðstjóra að heyra i sjónvarpi i gær ,en þetta getur ekki verið einleikið samt/Halli gamli


mbl.is Mál mótmælenda þingfest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þú ert á villigötum með þetta. Sannleikurinn er sá að ákæruvaldið veit ekkert verra en að að mál tefjist. Oftast eru það verjendur sem reyna að tefja málin, því það getur dregur máttinn úr sókninni. Stundum tefjast mál vegna erfiðleika við að afla gagna o.s.frv. eða bara klúðurs. Tafir eru sakborningum nær alltaf í hag og vanalega er ákæruvaldið skammað af dómurum þegar svo háttar til. En að sóknin fari sjálf að tefja mál vísvitandi er ekki inni í myndinni. Samsæriskenning þín hljómar reyndar skemmtilega en stenst ekki nánari skoðun.

Steini (IP-tala skráð) 21.1.2010 kl. 14:11

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Steini þakka athugasemdina/en mikil er trú þín drengur minn,en þetta er skoðun,og auðvitað þin en ekki mín/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 21.1.2010 kl. 14:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045595

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband