Fjallað um íslenska fátækt/þetta þarf að ræða og er okkar skömm!!!!!!

Fjallað um íslenska fátækt
Innlent | AFP | 11.4.2010 | 8:34

Mynd 446182,,Ég segi börnunum mínum ekki hvar ég fæ matinn. Ég skammast mín of mikið,” er haft eftir íslenskri konu í ástralska blaðinu Sydney Morning Herald. Konan, þriggja barna móðir, hefur leitað til hjálparstofnana til að fá mat í hverri viku í heilt ár. Fjallað er ítarlega um íslenska fátækt í blaðinu.

Fjármálakreppan sem felldi efnahag Íslands árið 2008 gerði þúsundir fjölskyldna, sem áður voru vel á sig komnar, fátækar og leiddi til þess að fólk þurfti að leita til hjálparstofnana til að lifa af, segir í fréttinni.

Í viku hverri sæki um 550 fjölskyldur til Fjölskylduhjálpar Íslands, um þrisvar sinnum fleiri en fyrir kreppuna. Talað er við annan íslending, Rút Jónsson, verkfræðing á sjötugsaldri sem sestur er í helgan stein, sem starfar sem sjálfboðaliði við að útdeila matnum.

„Ég hef tíma aflögu til að hjálpa öðrum og það er það besta sem ég get gert,” segir hann við AFP, þar sem hann var í óðaönn að pakka mat í poka.

Í litlu og nánu samfélagi eins og Íslandi, segir í fréttinni, þar sem aðeins búi um 317.000 manns sé erfitt að þiggja ölmusu og af þeim tugum manna sem bíði fyrir utan Fjölskylduhjálp hafi fyrrnefnd kona verið sú eina sem vildi tala við blaðamanninn.

„Það var mjög erfitt fyrir mig að koma hérna fyrst um sinn. En núna reyni ég að hugsa ekki svo mikið um það,” segir hún. Hún missti vinnuna sína í apóteki síðasta sumar.

Aðstæðurnar nú eru í harkalegum samanburði við yfirgnæfandi ríkidæmið sem virtist allsráðandi á eyjunni fyrir um tveimur árum síðan, þegar ofvirkur bankageiri sáldraði peningum yfir hagkerfið, sem áður hafði byggst aðallega á fiskveiðum. Á þeim tíma voru helstu áhyggjur fólks þær hver ætti stærsta jeppann eða hver ætti glæsilegustu íbúðina.

Í dag séu merki um fátækt hins vegar að margfaldast á Íslandi, þrátt fyrir að það sé þróað velferðarríki. Millistéttin verði í æ meiri mæli fyrir barðinu á atvinnumissi og geti ekki borgað af lánum sínum.

„Fjölskyldurnar 550, sem við tökum á móti hér, telja um 2.700 manns og sú tala heldur áfram að hækka,” segir Ásgerður Jóna Flosadóttir, stjórnandi Fjölskylduhjálpar, við AFP.

Konan sem rætt var við í upphafi fréttarinnar er sögð vera að borga af tveimur bílalánum, sem hún hafi tekið í erlendri mynt eftir slæma ráðgjöf frá bankanum hennar. Hún hafi samið um ársfrystingu á lánum við bankann sinn, eftir að hafa verið hótað útburði af heimili sínu í Vogum á Vatnsleysuströnd. „Mér líður illa og ég hef miklar áhyggjur,” segir hún ,,Ég hef hugsað um að flýja land, en ákvað að vera hér því vinir mínir hafa stigið fram og veitt tryggingar fyrir lánunum mínum,” bætir hún við leið í bragði.

Til að komast hjá því að þiggja ölmusu, segir í fréttinni, kjósa margir íslendingar að pakka niður og reyna fyrir sér í útlöndum. Opinberar tölur sýna að mesti brottflutningur fólks í heila öld á sér nú stað.

„Ég sé bara enga framtíð hér. Það verður engin framtíð í þessu landi næstu 20 árin,” segir Anna Margrét Björnsdóttir, 46 ára gömul einstæð móðir sem er að undirbúa flutning til Noregs í júní, ef henni tekst ekki að halda húseign sinni.

Fyrir þá sem eru eftir, er æ erfiðara að ná endum saman. Á meðan aðeins lítill minnihluti fer og fær mat gefins, viðurkenna sumir foreldrar að svelta sjálfa sig til þess að geta gefið börnunum sínum að borða. „Ég verð að viðurkenna að með hækkandi matarverðinu er það orðið þannig að synir mínir tveir borða mest af því sem ég og maðurinn minn komum með heim,” er haft eftir konu, sem blaðamaður mun hafa hitt á kaffihúsi í Reykjavík. „Við fáum það sem er eftir þegar þeir eru búnir.”///þessi mál eru ekki uppi á borðinu hja´okkar fólki i Ríkisstjórn ,segja m,eira að segja að Þetta sé ekki orð á gerandi,það sagði Steingrímur J. í gær að þetta væri ekki meir sennilega minna en a hinum norðurlöndunum,allt borið sig saman við þá sem vilja kalla okkur bini sýna??? en þetta er staðreynd og skömm/Halli gamli


mbl.is Fjallað um íslenska fátækt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrannar Baldursson

Rétt hjá þér. Fólki hefur ekki verið hjálpað við að hjálpa sér sjálft, og það er afar slæmt.

Hrannar Baldursson, 11.4.2010 kl. 10:30

2 Smámynd: Hrannar Baldursson

Rétt hjá þér. Fólki hefur ekki verið hjálpað við að hjálpa sér sjálft, og það er afar slæmt.

Hrannar Baldursson, 11.4.2010 kl. 10:30

3 Smámynd: Hrannar Baldursson

Úps! Athugasemdin birtist óvart tvisvar.

Hrannar Baldursson, 11.4.2010 kl. 10:31

4 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Sæll Hrannar hvernig er þessum málum háttað i Noregi???/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 11.4.2010 kl. 10:37

5 Smámynd: Hrannar Baldursson

Sæll Halli,

Það er misjafnt. Ef fólk er duglegt og vill bjarga sér, þá er stuðningur til staðar, en aðeins tímabundinn fyrir útlendinga, þar með talið Íslendinga. Það hefur komið mér mjög á óvart hversu mikið er af útigangsfólki og betlurum í miðbæ Osló, í landi þar sem ríkidæmið virðist mikið. Það getur reynst erfitt að fá gott starf í Noregi fyrsta árið, en það þarf að þrauka mikla fátækt fyrst um sinn, og síðan kemur þetta bara með kalda vatninu... eða ekki.

Hrannar Baldursson, 11.4.2010 kl. 10:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 2
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 1045453

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband