Stöðvi flugumferð yfir allri V-Evrópu !!!!!!

Stöðvi flugumferð yfir allri V-Evrópu
Innlent | mbl.is | 14.4.2010 | 21:50

Áhrifa öskufallsins úr gosinu í Eyjafjallajökli kann að gæta víða.Öskufallið frá eldgosinu í Eyjafjallajökli kann að stöðva flugumferð í allri Vestur-Evrópu að því er kom fram í fréttum norska ríkisútvarpsins. Búið sé að banna allt flug norður af Namsos í Norður-Noregi og á morgun kunni það sama að gilda um alla Vestur-Evrópu.
Öskuskýið mun breiða úr sér og kann að lama alla flugumferð yfir einhverjum svæðum Vestur-Evrópu í fyrramálið,“ hefur TV 2 sjónvarpsstöðin eftir Jens Petter Duestad, yfirmanna flugumferðar í Norður-Noregi. Undir kvöldið í gær var ákveðið að banna flug á flugsvæðinu norður Namsos vegna ótta við að öskufallið berist þangað. Og nú í kvöld bárust fregnir af að bannið næði líka til sænskra flugvalla. Ringulreið ríkti á Bodø flugvellinum í Noregi þar sem flugvélar voru kyrrsettar. Þær flugvélar sem þegar voru komnar í loftið fengu hins vegar leyfi til halda áfram ferð sinni.

Á fimmtudag megi síðan búast við að öskufallið lami stóran hluta flugumferðar í Evrópu. Þess sé einkum vænst öskufallið leiti yfir flugsvæðið yfir Bretlandi, Belgíu og Hollandi///Öskugos eru svona og berast um háloftin og eru flugi hættuleg og það ber að virða/Halli gamli


mbl.is Stöðvi flugumferð yfir allri V-Evrópu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Eldgos gera ekki mannamun né landamun? M.b.kv. Anna

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 14.4.2010 kl. 23:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 11
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 1045571

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 41
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband