Höskuldur H. Ólafsson ráðinn bankastjóri Arion banka/af hverju ekki sagt hverjir sóttu um????

Höskuldur H. Ólafsson ráðinn bankastjóri Arion banka
Viðskipti | mbl.is | 23.4.2010 | 13:55

Höskuldur H. Ólafsson.Stjórn Arion banka hefur ráðið Höskuld H. Ólafsson í starf bankastjóra Arion banka og mun hann taka til starfa eigi síðar en 1. júní næstkomandi. Höskuldur var valinn úr hópi 40 umsækjenda sem sóttu um stöðuna.þagar Arion banki aglysti eftir bankastjora í desember.

Ný stjórn Arion banka sem tók til starfa 18. mars sl. hefur unnið að ráðningu Höskuldar H. Ólafssonar undanfarnar vikur. Í tilkynningu frá bankanum segir, að við val á nýjum bankastjóra hafi sérstaklega verið litið til þess að viðkomandi hefði víðtæka stjórnunarreynslu, m.a. úr fjármálageiranum og byggi yfir hæfileikum til að stýra einum af stærstu bönkum landsins á umbreytingaskeiði í íslensku efnahagslífi.

Höskuldur hefur verið forstjóri Valitor – Visa Ísland síðastliðin fjögur ár en þar áður gegndi hann margvíslegum stjórnunarstörfum hjá Eimskip í 17 ár, hér á landi og erlendis. Höskuldur er viðskiptafræðingur að mennt. Hann er kvæntur Sigríði Ólafsdóttur og eiga þau þrjú börn.////þetta sjáfsagt góður maður i þetta en hverjir voru hinir 39 það seð skrýtið að segja ekki frá því/en vonum að þetta sé bara gott/Halli gamli


mbl.is Höskuldur H. Ólafsson ráðinn bankastjóri Arion banka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Það er ekki verið að segja hverjir sóttu um vegna þess að ekki var einhugur um ráðninguna og menn vilja ekki láta það vitnast að kannski var ekki sá hæfasti ráðinn semsagt "vinasamfélagið" er enn í fullu gildi.

Jóhann Elíasson, 23.4.2010 kl. 15:22

2 Smámynd: Finnur Bárðarson

Sammála Jóhanni

Finnur Bárðarson, 23.4.2010 kl. 16:01

3 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Er hann búinn að fara í hæfileika-próf? Og ef ekki, þá spyr ég: á virkilega ekki að fara að taka upp nýjar og þarfar aðferðir við að ráða þessa peninga-ráðamenn á Íslandi?

Ég vil vita hans styrkleika og færnis-svið því það skiptir mjög miklu máli. Háskóla-próf eru gagnslaus miðað við slík færni og persónuleika-próf, þegar meta skal hæfni fólks til starfa.

Þurfum við nú ekki að nýta það sem er gagnlegt af nýrri þekkingu og aðferðum?

Ef það verður ekki get núna verður það aldrei gert! m.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 23.4.2010 kl. 17:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 30
  • Frá upphafi: 1045624

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 30
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband