Einn kom með veghefil/þetta frábært að gera!!!!!

Einn kom með veghefil
Innlent | mbl.is | 25.4.2010 | 12:47

Bændur undir Eyjafjöllum eru byrjaðir að plægja tún og akra. „Það er alls staðar verið að vinna og hreinsa,“ sagði Árni Johnsen, alþingismaður, sem hefur verið undanfarna daga undir Eyjafjöllum. Eyjamenn ætla að bjóða konum undan Fjöllunum í dagsferð til Vestmannaeyja í næstu viku og stefna svo að goslokahátíð að loknu eldgosinu, enda komnir í æfingu.

Árni sagði að fjöldi sjálfboðaliða leggi nú hönd á plóginn á gossvæðinu auk slökkviliðsmanna á dælubílum og mjókurbílstjóra á mjólkurbílum sem flytja vatn til dælubílanna.  Hópar komu nú um helgina til aðstoðar og eru sjálfboðaliðarnir fleiri í dag en í gær, aÞeir eru að liðka til við hreinsunina og bústörfin. Svo eru hér galvaskir menn eins og Pétur Óli Pétursson, sem hefur verið hér í þrjá sólarhringa. Sumir koma með skóflu en Pétur Óli kom með veghefil!“

Árni hefur fylgt Pétri Óla um sveitirnar og sagði að hann sé búinn að hreinsa stór bæjarhlöð t.d. á Steinum, í Drangshlíð og á Hvassafelli með heflinum. Í gær og í dag hefur hann verið að vinna í Önundarhorni þar sem mikil aska lagðist yfir.

„Þar hefur hann rutt aur af túnum til að létta á þeim. Það skiptir miklu áður en túnin eru plægð að fjarlægja aurinn. Þetta er búið að prófa á tveimur stöðum og hefur tekist vel. 

Svo hefur hann heflað hlöðin á Önundarhorni og vinnuveg sem tengir öll tún. Nú er hann að vinna í leggnum að þjóðveginum sem er tæpir tveir kílómetrar,“ sagði Árni.

Árni sagði að þegar hugað verði að bótum fyrir það tjón sem Eyfellingar hafa orðið fyrir þurfi að setja nýtt yfirlag, mulning, á allar heimreiðar að sveitabæjum. Þegar góskan sé fjarlægð fari mölin með og hart undirlagið sé eitt eftir.

Mikil samstaða hjá fólkinu

„Mér finnst ríkjandi hér stóísk ró og baráttugleði,“ sagði Árni. „Auðvitað er beygur í sumum en hann er að fjara út. Það er mikil samstaða í fólkinu. Margir fara í mat í Heimalandi á hverjum degi og menn stappa stálinu hver í annan.“

Árni kvaðst hafa haft samband við bæði kvenfélögin undir Eyjafjöllum, Eygló og Fjallkonuna, því til stendur að bjóða öllum konum undir Fjöllunum í dagsferð til Vestmannaeyja, vonandi í næstu viku.  „Það er vonandi að sem flestar komi, þetta er allt í góðum gír,“ sagði Árni.

„Við höfum hótað því Eyjamenn, þegar gosið er búið, að halda hér snöggsoðna goslokahátíð. Fá nokkra tanka af öli og hljóðfærum að Skógum. Við erum vanir,“ sagði Árni fullur af eldmóð./////þetta frábært að gera ,og á Arni og allt þetta teymi allt gott skilið ekki veitir af að hjálpa til og stappa stálinu i fólkið og hver er betri en hver ar betri til þessa en 'Arni og c/o/Halli gamli 


mbl.is Einn kom með veghefil
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þarna er Óla rétt lýst. Hann er alltaf að rétta fólki hjálparhönd með bros á vör, og er ekkert að eyða orðum í hlutina, bara framkvæmir. Hefur alla tíð verið ljúfur og yndislegur drengur. Bara að fleiri væru líkir honum, þá væru vandamálin færri í þjóðfélaginu.

Rósa (IP-tala skráð) 25.4.2010 kl. 14:27

2 Smámynd: Óskar Þorkelsson

lol copy paste af mogganum og ein setning í lokin.. frábært blogg :)

Óskar Þorkelsson, 25.4.2010 kl. 14:58

3 identicon

Langaði að benda fólki á að það er aukaferð frá Akureyri til Reykjavíkur og frá Reykjavík til Akureyrar með áætlunarbílum Bíla og fólks - Sterna/Trex kl 22:00 í kvöld 25/4 Þessi ferð passar fyrir þá sem vilja komast frá Egilsstöðum til Reykjavíkur með 16:15 ferð Sba.

Jóna Magnea Magnúsdóttir-Hansen (IP-tala skráð) 25.4.2010 kl. 15:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband