Skilur réttláta reiði almennings/það verður hann að gera!!!!

Skilur réttláta reiði almennings
Innlent | mbl.is | 30.4.2010 | 9:29

Björgólfur Thor Björgólfsson Björgólfur Thor Björgólfsson segir í bréfi til Alþingis og þingmanna, að hann skilji réttláta reiði almennings gagnvart þeim sem voru þátttakendur í þeirri atburðarás sem leiddi til bankahrunsins.
Það mun taka mig mörg ár að byggja upp mannorð mitt á Íslandi á nýjan leik ef það tekst á annað borð, en ég er staðráðinn í að gera mitt besta til þess. Ég geri hins vegar ráð fyrir að grundvallarreglum réttarríkisins verði framfylgt í meðferð þeirra mála sem tengjast hruninu, sem og við afgreiðslu mála almennt hjá Alþingi og ríkisvaldi," segir Björgólfur í bréfinu.

Bréfið er skrifað í tengslum við afgreiðslu Alþingis á frumvarpi um fjárfestingarsamning við Verne Holdings ehf. vegna gagnavers í Reykjanesbæ, en Novator, fjárfestingarfélag Björgólfs, er einn af stærstu hluthöfum í Verne Holdings. Er bréfið birt sem fylgiskjal með nefndaráliti iðnaðarnefndar Alþingis.

Segir Björgólfur í bréfinu að lögfesting fjárfestingarsamningsins sé nauðsynleg til að af verkefninu verði.

„Uppbygging atvinnulífsins og erlend fjárfesting er nauðsynlegur þáttur í endurreisn íslensks efnahagslífs. Gagnaverið í Reykjanesbæ fer þar fremst í flokki, og það væri stórkostlegur missir fyrir atvinnuuppbyggingu hér á landi ef ekki yrði af verkefninu. Ef persónuleg aðkoma mín stendur í vegi fyrir að unnt sér að veita fyrirtækinu þá fyrirgreiðslu sem felst í samningnum hef ég ákveðið eftirfarandi:

  1. Ég afsala mér þeim ríkisstyrk sem felst í lögfestingu fjárfestingarsamningsins. Við sölu Verne Holdings ehf. eða greiðslu arðs til mín frá félaginu mun ég greiða til ríkisins þau verðmæti sem felast í gerð samningsins við lögfestingu, að teknu tilliti til eignarhlutar míns í félaginu og greiddra skatta. Ég sem fjárfestir mun því ekki njóta fjárhagslegs ávinnings af fyrirgreiðslu ríkisins.  
  2. Ég mun ekki auka við hlut minn í félaginu og ekki taka leiðandi hlutverk við stjórn þess.

 

Það er von mín að með þessu sé unnt að tryggja framgang verkefnisins og persóna mín flækist ekki fyrir afgreiðslu málsins," segir Björgólfur í bréfinu.

Iðnaðarnefnd þingsins afgreiddi frumvarpið síðan til 2. umræðu á Alþingi í vikunni og gerir þá breytingartillögu, að  ákvæði verði sett inn í lögin um að Novator falli frá arðgreiðslum sem til koma af skattaívilnunum.///vonum bara að meini þetta og öllum má fyrirgefa, sini þeir i reynd iðrun og bæti fyrir það,það er svo annað ef dómstólar dæma hann fyrir eitthvað sem þeir telja ólöglegt,það veður að hafa sinn gang ,en siðferðið verða menn að bæta fyrir í öllum stigum þjófélagsinns við getum ekki annað ef men sína i verki iðrun og ætla að bæta alla skaða sem þeir og ollu,það ber einnig fleirum að gera/Halli gamli


mbl.is Skilur réttláta reiði almennings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 3
  • Sl. sólarhring: 9
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 1045454

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband