Kerfisbundið og skipulagt/þetta er glæpamennska allt saman!!!!

Kerfisbundið og skipulagt
Innlent | Morgunblaðið | 12.5.2010 | 9:45

Mynd 527714 „Mjög umfangsmikil, kerfisbundin og skipulögð.“ Þannig lýsir sérstakur saksóknari meintri markaðsmisnotkun Kaupþingsmanna í greinargerð með gæsluvarðhaldskröfu yfir Magnúsi Guðmundssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings í Lúxemborg.
Einnig segir að mál af þessari stærðargráðu eigi sér ekki hliðstæðu í rannsóknum sakamála hér á landi og þótt víðar væri leitað, hvað fjárhagslega hagsmuni varðar.

Líkt og alkunna er sitja þeir Magnús og Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, í gæsluvarðhaldi. Magnús er grunaður um aðild að stórfelldum og kerfisbundnum efnahagsbrotum í starfi sínu og er þeim lýst nánar í fimm köflum.

 Losaði bankann við eigin bréf

Á árunum 2005 til 2009 keypti Kaupþing umtalsvert af hlutabréfum útgefnum af bankanum eða um 217 milljónir hluta nettó á tímabilinu, sem sé um 29% af útgefnu hlutafé bankans miðað við útgefið hlutafé 30. júní 2008.

Upp hafi safnast eigin bréf umfram lögbundin 10% á tímabili, og hinn 8. október 2008 voru eigin bréf bankans komin upp í 92% af heildarverðbréfasafni eigin viðskipta.

Sérstakur saksóknari telur rökstuddan grun um að viðskipti með eigin bréf hafi verið stunduð með kerfisbundnum og skipulögðum hætti yfir langt tímabil til að hafa áhrif á verð hlutabréfanna.

Magnús er talinn hafa, fyrir hönd Kaupþings í Lúxemborg, átt aðild að viðskiptunum með því að koma á viðskiptum með eigin hlutabréf bankans til að losa bankann við þau.

Einnig eru til rannsóknar lán Kaupþings til félaganna Trenvis Limited, Holly Beach S.A., Charbon Capital Ltd. og Harlow Equities SA, samtals að fjárhæð 260 milljónir evra vegna kaupa félaganna Chesterfield United Inc. og Partridge Management Group á skuldabréfum tengdum skuldatryggingaálagi Kaupþings. Þá lánaði Kaupþing tveimur síðastnefndu félaganna til að mæta veðköllum frá Deutsche Bank vegna kaupanna, og komu lánin til eftir veitingu Seðlabanka Íslands á 500 milljóna evra neyðarláni til Kaupþings.

Upplýsingar eru um að Sigurður Einarsson, Hreiðar Már Sigurðsson og Magnús Guðmundsson hafi tekið ákvarðanir um umrædd viðskipti. Rannsóknin beinist m.a. að því hvernig var staðið að ákvörðunum af hálfu umræddra félaga sem virðast hafa verið óvirkir milliliðir í viðskiptum milli Kaupþings og Deutsche Bank.

Fjármagnsfærslur Kaupþings til félaganna Marple Holdings SA og Lindsor Holdings Corporation, kaup félaganna á skuldabréfum útgefnum af Kaupþingi á árinu 2008 og skjalagerð vegna þessara viðskipta eru einnig til rannsóknar en Marple Holding var í eigu Skúla Þorvaldssonar

Um var að ræða framvirka samninga og talið að tilgangur viðskiptanna hafi verið að flytja áhættuna af fallandi verðgildi skuldabréfa af Marple Holdings SA og lykilstarfsmönnum Kaupþings í Lúxemborg yfir á Kaupþing banka á Íslandi.

Gögn bendi sterklega til þess að skjöl vegna viðskiptanna hafi verið útbúin og undirrituð eftir fall bankans og Guðný Arna Sveinsdóttir, fyrrverandi framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Kaupþings og þá skilanefndarmaður Kaupþings, hafi haft milligöngu um frágang skjalanna, en þau virðast fölsuð bæði hvað varðar efni og dagsetningar.

Kaup Q Iceland Finance ehf. á hlutabréfum í Kaupþingi eru einnig til rannsóknar, en þá voru veittar lánafyrirgreiðslur til félaga í eigu Ólafs Ólafssonar og Sheiks Al-Thani.

Í greinargerðinni segir að tjón hluthafa, kröfuhafa, ríkissjóðs og samfélagsins hafi orðið mun meira en ella vegna hinna meintu brota.//////brotaviljin virðist bara einlægur og ekkert athugavert að mans skilningi ,þetta á sér ekki hliðstæðu að mati manna,það et orðum öllum ljost að þetta eru meiriháttar brot og ber að refsa mönnum eftir þvi,en þetta er ekki búið og bara þessi Banki komin á kopin svo hinir og allr, sem þarna hafa af sér brotið verða látnir gjalda fyrir það ,það gott að taka til i þessum geira og þarft mjög/Halli gamli 


mbl.is Kerfisbundið og skipulagt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband