Sigrún Björk segir af sér///Rétt ákvörðun hennar !!!!!!

Sigrún Björk segir af sér
Innlent | mbl.is | 31.5.2010 | 13:59

Sigrún Björk Jakobsdóttir óskar Oddi Helga Halldórssyni... Sigrún Björk Jakobsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, ætlar að víkja sem oddviti flokksins og mun ekki taka sæti í bæjarstjórn á nýju kjörtímabili. Ólafur Jónsson tekur sæti í bæjarstjórninni í stað Sigrúna

Þetta kemur fram í yfirlýsingu, sem Sigrún Björk hefur sent frá sér. Segist hún gera þetta í ljósi hins mikla fylgistaps, sem flokkurinn varð fyrir í sveitarfélaginu en Sjálfstæðisflokkurinn fékk aðeins einn bæjarfulltrúa kjörinn en hafði fjóra.

Yfirlýsing Sigrúnar Bjarkar er eftirfarandi:

Í ljósi mikils fylgistaps Sjálfstæðisflokksins á Akureyri í nýliðnum sveitarstjórnarkosningum hef ég ákveðið að víkja sem oddviti flokksins hér í bæ. Ég mun því ekki taka sæti í bæjarstjórn á nýju kjörtímabili.

Niðurstaða kjósenda er skýr. L-listinn vann frábæran og sögulegan kosningasigur. Ég óska þeim innilega til hamingju með sigurinn og bæjarfulltrúum listans velfarnaðar í sínum störfum.

Ég kveð bæjarstjórn Akureyrar sátt og er stolt af því sem hefur áunnist á þeim átta árum sem ég hef setið í bæjarstjórn. Nú finnst mér rétt að nýr aðili taki við keflinu. Ólafur Jónsson mun taka sæti mitt í bæjarstjórn. Þar er góður maður á ferð, sem og aðrir frambjóðendur á lista flokksins.

Ég vil þakka samherjum mínum í Sjálfstæðisflokknum gott samstarf og stuðning á liðnum árum. Eins vil ég þakka starfsmönnum Akureyrarbæjar og fyrirtækja bæjarins ánægjulegt samstarf.

Ég hvet nýja bæjarstjórn til góðra verka, íbúum Akureyrarbæjar til heilla./////þetta sennilega besta ákvörðun hennar, við þessar aðstæður ekki spurning,við bara þökkum henni vel unninn störf,og óskum henni velfarnaðar,ef þetta verður til endurnýjunar þarna og tiltektar eins og allstaðar verður að ver er það gott fyrir Akureyringa og pólitíkina einnig,en það vara að birtast að þeir i L listanum ætli bara að starfa sem meirihluti og það  er ekki það sem Oddur sagði i gær samstjórn allra sagðan,en tengdasonurinn ræður og segist bara tala við andstöðuna svona þegar þeim hentar!!!! en skoðum ma´lin þarna betur/Halli gamli

 

 

r.

mbl.is Sigrún Björk segir af sér
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 51
  • Frá upphafi: 1045601

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband