Segir „sveiattan" við málflutningi Gylfa/það gera flestir ef ekki allir???


Segir „sveiattan" við málflutningi Gylfa
Innlent | mbl.is | 29.6.2010 | 12:48

Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags AkranessVilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, var meðal þeirra fjölmörgu sem sóttu borgarafund í Iðnó í gærkvöldi. Á vef verkalýðsfélagsins lýsir hann vanþóknun sinni á orðum Gylfa Magnússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra á fundinum með þessum orðum: Sveiattan.
Ragnar Baldursson lögmaður sem rak annað dómsmálið fyrir Hæstarétti sagði að dómur Hæstaréttar væri hvellskýr og menn væru að búa til óvissu. Hann sagði að þeir vextir sem væru tilgreindir í lánasamningunum ættu skýlaust að standa óhaggaðir og að dómurinn væri afar skýr.

Það var með ólíkindum að hlusta á ráðherrann svara, því hann hefur ekki talað um að það hafi verið ósanngjarnt að skuldsett heimili þyrftu að horfa upp á gengistryggðu lánin sín hækka um og yfir 100% vegna falls bankanna.  Gylfi Magnússon hefur ekki verið tilbúinn að fara í almennar leiðréttingar á stökkbreyttum höfuðstól gengistryggðra og verðtryggðra lána. En núna þegar fallinn er dómur sem er hagstæður alþýðu þess lands þá talar hann um að það verði að finna sanngjarna niðurstöðu með hagsmuni allra að leiðarljósi. Þetta er ótrúlegur málflutningur í ljósi þess að ráðherrann hefur ekki verið tilbúinn að koma til móts við þann forsendubrest á skuldastöðu heimilanna fyrr en dómur Hæstaréttar féll," skrifar Vilhjálmur á vef Verkalýðsfélags Akraness. 

 Vilhjálmur vísaði einnig í orð Péturs Blöndal, þingmanns Sjálfstæðisflokksins: „Það var einnig afar fróðlegt að hlusta á framsögu Péturs Blöndal þar sem hann sagði skuldara sjálfhverfa og minntist á tap sparifjáreigenda. Pétur sagði einnig að fundarmenn horfðu aðallega á naflann á sjálfum sér.  

Formaður Verkalýðsfélags Akraness sagði á fundinum að það væri ekki sæmandi þingmanni að tala niður til fólks með þessum hætti sem væri einungis að fara fram á að dómur frá Hæstarétti væri virtur. Formaður VLFA spurði Pétur einnig hvort það gæti ekki verið staðreynd að hann væri að horfa á naflann á sjálfum þegar hann talaði í sífellu um að verja þurfi fjármagnseigendur í hvívetna. 

Formaður minnti fundarmenn á hvernig ríkisstjórn Íslands hjálpaði fjármagnseigendum þegar bankakerfið hrundi en eins og allir vita þá settu íslensk stjórnvöld 200 milljarða inn í peningamarkaðssjóðina og tryggðu einnig allar innistæður í bönkum. Á þessu sést að íslensk stjórnvöld eru tilbúin til að verja fjármagnseigendur með kjafti og klóm á meðan skuldsettum heimilum er gert að greiða allar sínar skuldir og jafnvel þó umrædd lán standist ekki íslensk lög.

 Það kom fram í máli Gylfa að ef dómur Hæstaréttar stendur þá muni það kosta 100 milljarða það var eins og áður sagði ekkert mál að slá skjaldborg um fjármagnseignendur með því að setja 200 milljarða inn í peningamarkaðssjóðina og tryggja einnig allar innistæður í bönkum.  Svo tala þessir menn um að það þurfi að ríkja sanngirni. Því segir formaður Verkalýðsfélags Akraness við svona málflutningi: Sveiattan."/////þarn sjáum við hvernig þessir ráðamenn Gylfi Ráðherra og Pétur Blöndal virða þetta dómsmál og svari hver fyrir sig eg segi bara sama og Villi sveiattan/annað er ekki hægt i bili/Halli gamli


mbl.is Segir „sveiattan" við málflutningi Gylfa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Já sveiattan!

Sigurður Haraldsson, 29.6.2010 kl. 20:14

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 1045455

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband