Kirkjuráð biðst fyrirgefningar/er það bara nógu afgerandi ?????

Kirkjuráð biðst fyrirgefningar
Innlent | mbl.is | 25.8.2010 | 17:19

Skrifstofur þjóðkirkjunnar við Laugaveg. Kirkjuráð segist í yfirlýsingu trúa frásögnum þeirra Sigrúnar Pálínu Ingvarsdóttur og Guðrúnar Ebbu Ólafsdóttur sem komu á fund ráðsins og lýstu sögu sinni sem þolendur kynferðisbrota Ólafs Skúlasonar, biskups. Biður kirkjuráð fyrir hönd þjóðkirkjunnar, konurnar og aðra þá, sem brotið hafi verið á af hálfu starfsmanna og þjóna kirkjunnar, fyrirgefningar.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu, sem kirkjuráð samþykkti á fundi sínum í dag.

Yfirlýsingin er eftirfarandi:

 

Kirkjuráð hefur átt fundi með Sigrúnu Pálínu Ingvarsdóttur og Guðrúnu Ebbu Ólafsdóttur þar sem þær lýstu sögu sinni sem þolendur kynferðisbrota. Kirkjuráð trúir frásögnum þeirra og tekur undir orð biskups Íslands í fjölmiðlum í dag þess efnis.

Fyrir hönd þjóðkirkjunnar biður kirkjuráð þær og aðra þá sem brotið hefur verið á af hálfu starfsmanna og þjóna kirkjunnar fyrirgefningar. Kirkjuráð harmar þá þjáningu og sársauka sem þau hafa liðið. 

Kirkjuráð ítrekar að kynferðisbrot eru ekki liðin innan kirkjunnar og lýsir samstöðu við þá einstaklinga og félagasamtök sem styðja þau sem líða og vinna að forvörnum og vitundarvakningu meðal þjóðarinnar um þessi alvarlegu mál. /////þetta er spor i retta átt en ekki nóg að mínu mati!!! það er svo langt gengið að ekki er aftur snúið og það verður að gera þetta að Dómsmali jafnvel þó málið sé fyrnt,það var þá Rikiskirkja en hefur verið breitt síðan i þjókirkju að mínu mati en auðvitað ber ríkinu að leiða þetta til lykta ekki prestunum og kirkjuráði þá er of hlutdrægt,svo fáist eittkver niðurstaða ef hægt er að fá hana þar sem standur orð á móti orði,manni sem  leikmanni og fríkirkjumanni finnst ekkert annað kom til greina/annars verður þetta mal eylíft/en áfram með aðskilnað Ríkis og kirkju það er malið/Halli gamli


mbl.is Kirkjuráð biðst fyrirgefningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur St Ragnarsson

Fyrirgefið og þér mun fyrirgefið verða. Þetta er góð byrjun en meira þarf til.

Guðmundur St Ragnarsson, 26.8.2010 kl. 00:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 1045625

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband