Nærri samþykki með skilyrðum/þetta vonandi verður ,og okkar hagnaður!!!!

Nærri samþykki með skilyrðum
Innlent | mbl.is | 30.8.2010 | 21:23

ECA vill nýta stóra flugskýlið og byggja upp aðstöðu á...ECA, hollenskt fyrirtæki sem hyggst setja upp aðstöðu á Keflavíkurflugvelli fyrir óvopnaðar herþotur, er nálægt því að fá samþykki íslenskra stjórnvalda með skilyrðum. Fréttavefur Financial Times hefur þetta eftir ónefndum embættismönnum.

Viðræður fyrirtækisins og íslenskra stjórnvalda hafa staðið í meira en ár. Rætt hefur verið um að fyrirtækið leigi aðstöðu á Keflavíkurflugvelli. Fréttavefurinn segir að búið sé að útvega flest vottorð sem þurfi til að flytja þoturnar til Íslands. Búið er að útvega þann búnað sem þarf á jörðu niðri. 

Fréttavefurinn segir að það sé fjarri því að einhugur ríki um þetta verkefni innan ríkisstjórnar Íslands. Melville ten Cate, einn stofnenda ECA, segir ekkert grunsamlegt við áform hans um að kaupa herþotur frá Hvíta-Rússlandi fyrir 1,5 milljarða dollara og flytja þær til Íslands.

Þoturnar munu verða óvopnaðar og ekki búnar til að bera skotfæri. Því verður hægt að skrá þær sem borgaraleg flugför. Þær verða ekki notaðar til neinna heræfinga í íslenskri lofthelgi. 

ECA hafði áður augastað á Goose Bay í Kanada fyrir starfsemi sína en beindu áhuga sínum að Íslandi eftir að samningaviðræður við Kanadamenn fóru út um þúfur.////vonandi að þessir samningar gangi eftir ,auðvitað eigum við að hagnast eins og hlægt er þarna ekki veitir okkur af,spítala þarna einnig og margt fleira 
,ekki veitir bæjarfélagin af,eftir að hafa hlustað á Bæjarstjórn i kastljósi í kvöld,en þessu er reyndar velt upp pólitíkst auðvitað af hluta,samfylgin er sjálfrar sín alltaf eins og við vitum sem viljum vita/en vonandi að þetta með Hollendingana gangi eftir og fleira/Halli gamli


mbl.is Nærri samþykki með skilyrðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Höfuðaðsetur E.C.A. fyrirtækisins er inni á lóð hollenskrar herstöðvar sem er ein helsta þjálfunarstöð konunglega flughersins. Fyrst hóta þeir okkur efnahagsþvingunum og nú á að senda hingað herþotur, hringir það ekki viðvörunarbjöllum?

Guðmundur Ásgeirsson, 31.8.2010 kl. 13:36

2 Smámynd: Haraldur Haraldsson

Það getur vel verið Guðmundur skil þetta vel sem þú bendir á,en allt er hey i harðindum og skilyrðin vitum við ekki,svo blöndum við þessu ekki endilega saman/Kveðja Halli gamli

Haraldur Haraldsson, 31.8.2010 kl. 20:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband