Bolungarvíkurgöng lokuðust í gær/fall er fararaheill,segir máltækið !!!!

Bolungarvíkurgöng lokuðust í gær
Innlent | Bæjarins besta | 29.9.2010 | 10:13

Úr Bolungarvíkurgöngunum. Bolungarvíkurgöng, sem opnuð voru um helgina, lokuðust a.m.k. í tvígang í gær, þegar kviknaði á lokunarljósum og slár fóru niður. Skoðunarstofa fór yfir rafmagnsbúnaðinn í göngunum síðdegis í gær.

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni virðist sem einn NO nemi, sem mælir magn köfnunarefnisoxíði, sé bilaður eða gallaður. Neminn sendi þær upplýsingar að of mikil mengun væri í göngunum og því ætti að loka þeim.

Jafnframt voru sendar upplýsingar til blásara um að fara í gang og loftræsa göngin, en vegna einhvers konar vanstillingar sló út rafmagni. „Þetta eru vonandi byrjunarörðugleikar, en í svona sjálfvirku viðvörunarkerfi er alltaf hætta á fölskum boðum. Vegfarendur verða samt að taka boðin alvarlega. Vegagerðarmenn munu reyna að leiðrétta slíkt eins fljótt og mögulegt er,“ segir Gísli Eiríksson, umdæmisstjóri Vegagerðarinnar á Ísafirði.////já það má  segja svo að fall sé fararheill,en svo er samt ekki gott að þessir mælirar skuli byrja að bila !!!vonandi að þetta sé ekki það sem  koma skal/Halli gamli


mbl.is Bolungarvíkurgöng lokuðust í gær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson
Haraldur Haraldsson Innfæddur Reykvikingur og foreldrar minir báðir fæddir i Rvik,Er bara sæmilega virðulegur eldri Borgari og var áður Verksmijustjóri í Málnigarverksmiðju hjá Slippfelaginu i Rvik h/f Stofnað 1902 vann þar i 46 ár!!! geri aðrir betur!!!!Hefi mikin áhuga á Stjórnmálum og þjóðmálum yfirleitt!!!En hefi bara barnaskólapróf,er það ekki Lásy eins og börnin segja????En eg er lika Sjálfstæður Sjálfstæðismaður!!! með fyrirvara um að við göngum ekki i ESB!!! bara als ekki  !!!, svo og einnig allt sem kemur að sjálfstæði þjóðar vorar,og er það ekki gott!!!!!
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband